Fara í efni

Undanfarnar þrjár vikur hafa Hlynur Örn Arnarsson og Ingunn Ragnarsdóttir verið í starfsnámi hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands sem hluta af námi sínu í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík. Starfsnámið fór fram á tveimur stöðum innan ÍSÍ.

Hlynur var á almenningsíþróttasviði sem vinnur að því að íþróttir og hreyfing séu hluti af daglegu lífi fólks um allt land og leggur áherslu á heilsu og vellíðan hjá öllum aldurshópum. Ingunn var hins vegar hjá Afreksmiðstöð Íslands sem hefur yfirumsjón með málefnum afreksíþrótta innan ÍSÍ og einstakra sérsambanda og sér um undirbúning vegna Ólympíuleika og annarra alþjóðlegra móta sem sambandið tekur þátt í.

Við settumst niður með þeim og ræddum reynsluna af dvölinni, helstu verkefnin og það sem stóð upp úr.

Fjölbreytt verkefni og ólík reynsla

Á þessum tíma fengu þau að kynnast fjölbreyttum verkefnum og daglegu starfi innan ÍSÍ. Hlynur kom meðal annars að verkefnum á borð við Raddir ungs fólks, Ferðasjóð ÍSÍ og Sýnum karakter og fékk að fylgjast með framkvæmd þeirra og taka þátt eftir því sem við átti.

Ingunn fékk hins vegar að sitja ýmsa stöðufundi með sérsamböndum og fylgjast með öðru sem tengist faglega hlutanum, auk þess sem hún vann að yfirferð gagna sem nýtast til frekari úrvinnslu og tölfræði.

Samstarf og fjölbreytni standa upp úr

Aðspurð um hvað hafi staðið upp úr nefna þau fyrst og fremst hversu víðtæk starfsemi ÍSÍ er og hversu margir þættir koma við sögu í daglegu starfi.

„Það kom okkur skemmtilega á óvart hversu auðvelt er að leita til fólks á milli deilda og hversu góð samvinna er á milli allra,“ segir Ingunn.

Hlynur tekur undir og segir þetta hafa hjálpað sér að komast fljótt inn í starfið.

Nýtist vel áfram í námi

Að þeirra mati mun reynslan nýtast vel áfram í náminu. „Það hjálpar mikið að fá að sjá hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í raun og veru og hvað þarf að hafa í huga við framkvæmd verkefna,“ segir Hlynur.

Ingunn segir þessa innsýn skipta miklu máli, sérstaklega þegar kemur að því að skilja betur hvernig verkefni eru unnin og skipulögð í reynd.

Dvölin hefur einnig aukið áhuga þeirra á störfum innan íþróttahreyfingarinnar. „Þetta hefur opnað augun fyrir því hversu mörg tækifæri eru í boði og hversu mikilvæg verkefni eru unnin hér.“

Hvetja aðra til að prófa

Að lokum hvetja þau aðra nemendur til að nýta sér sambærileg tækifæri. „Það skiptir miklu máli að vera forvitin og mæta með opinn huga,“ segir Ingunn.

Hlynur mælir með því að taka virkan þátt í verkefnum á meðan á dvöl stendur og Ingunn leggur áherslu á að gefa sér tíma til að kynnast sem flestum hliðum starfsins.