Fara í efni

Helga Þórðardóttir, lögfræðingur ÍSÍ, sótti nýverið námskeið á vegum Alþjóða Ólympíuakademíunnar (International Olympic Academy) sem haldið var í hinni sögufrægu Ólympíu í Grikklandi.

Námskeiðið er ætlað fulltrúum frá ólympíunefndum og ólympíuakademíum víðs vegar að úr heiminum og er vettvangur fræðslu, umræðu og tengslamyndunar um málefni á borð við gildi ólympíuhreyfingarinnar, inngildingu, heilindi í íþróttum og velferð íþróttafólks.

Helga segir ferðina hafa verið bæði skemmtilega og fræðandi og að það hafi verið sérstaklega áhugavert að hitta þátttakendur frá fjölmörgum löndum. Að hennar sögn glíma margar þjóðir við sambærileg verkefni innan íþróttahreyfingarinnar, þó nálgunin sé oft ólík eftir menningu og aðstæðum.

Heilindi í íþróttum í brennidepli

Einn fyrirlestur stóð sérstaklega upp úr hjá henni, fyrirlestur prófessors Yannis P. Pitsiladis um heilindi og vernd hreinna íþrótta. Þar fékk hún dýpri innsýn í þær áskoranir sem tengjast lyfjanotkun í íþróttum og áhrifum hennar á heilindi íþrótta.

Upplifun í sögufrægu umhverfi

Dvölin í Ólympíu sjálfri hafði einnig mikil áhrif á upplifunina. 

„Það var magnað að vera á þessum sögufræga stað og að deila því með svona stórum hópi af fólki sem flest hafði mikinn áhuga á svæðinu og sögu þess.“

Helga segir þó að hún hafi ekki alveg verið undirbúin fyrir hversu margir formlegir viðburðir og athafnir væru hluti af dagskránni, þar sem þátttakendur þurftu oft að mæta í sparifatnaði. 

„Ég tók bara með eitt sett af slíkum fatnaði…,“ segir hún og hlær.

Áhrifaríkasta erindið

Áhrifaríkasta erindi ferðarinnar var að hennar sögn þegar Samira Asghari, IOC-meðlimur frá Afganistan, sagði frá stöðu kvenna í Afganistan og hvernig íþróttir opnuðu henni ný tækifæri sem flóttamanni. Frásögnin hafði mikil áhrif á þátttakendur og varð meðal annars kveikja að verkefnavinnu hjá hópnum hennar Helgu.

Helga segir reynsluna af námskeiðinu nýtast vel í starfi sínu hjá ÍSÍ, meðal annars í verkefnum sem tengjast góðum stjórnarháttum, vernd og velferð íþróttafólks. Þá hafi ferðin einnig verið frábært tækifæri til að efla tengslanetið.

Helga segist klárlega mæla með þátttöku í námskeiðinu fyrir aðra.

„Þetta var algjört ævintýri.“