Fara í efni

Endurskoðuð íþróttastefna stjórnvalda til ársins 2030 hefur nú verið kynnt. Stefnan setur fram framtíðarsýn fyrir íþróttastarf á Íslandi með áherslu á eflingu íþróttastarfs, jafnt aðgengi að íþróttum og öflugar forvarnir með lýðheilsu að leiðarljósi um allt land. Auk þess sem lögð er áhersla á heildstæða nálgun og mikilvægi samstarfs opinberra aðila og íþróttahreyfingarinnar.

Efli samvinnu við stjórnvöld
Haft er eftir Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, að við hjá ÍSÍ fögnum endurskoðun stefnunnar til ársins 2030. Stefnan kjarnar vel áherslur á öflugri samvinnu við stjórnvöld, ekki síst með nýju svæðaskipulagi. Þar er meðal annars lögð áhersla á að með aðkomu svæðisfulltrúa verði stuðningur við íþróttafélög aukinn og samvinna við sveitarfélög styrkt vítt og breitt um landið.
Mikilvægi íþróttahreyfingarinnar fyrir forvarnir og lýðheilsu er óumdeilt og með stefnunni er leitast við að stuðla að jöfnum tækifærum fólks á öllum aldri til að finna sér farveg í íþróttum. Jafnframt er stefnt að auknum fjárhagslegum og faglegum stuðningi við afreksfólk í gegnum Afreksmiðstöð Íslands.

Til þess að stefnan nái markmiðum sínum þarf að fylgja henni eftir með aðgerðaráætlun og finna henni skýran farveg í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.
Íþróttahreyfingin, ÍSÍ og UMFÍ vinna nú í samvinnu við stjórnvöld að víðtæku samtali við grasrótina og aðra hagaðila. Þar er unnið að mótun skýrrar framtíðarsýnar, skilgreiningu hlutverks og markvissara skipulags hreyfingarinnar til komandi ára.

Hægt er að lesa um endurskoðaða íþróttastefnu stjórnvalda til 2030 hér á vef Stjórnarráðs Íslands:  https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/05/04/Ithrottir-styrkja-samfelagid-endurskodud-ithrottastefna-til-2030/

Og sjálfa stefnuna er hér að finna:  https://www.stjornarradid.is/library/03-Verkefni/Menntamal/iThrottir/ithrottastefna-2026.pdf