Ársþing Ungmennasambands Dalamanna og N-Breiðfirðinga (UDN) fór fram 9. apríl síðastliðinn. Fulltrúar fimm aðildarfélaga UDN mættu til þings en þinginu var stýrt af öryggi af Guðlaugu Kristinsdóttur þingforseta. Níu tillögur lágu fyrir þinginu og voru þær allar samþykktar. Þar á meðal var tillaga um ráðningu framkvæmdastjóra UDN í 20% starf til eins árs, til reynslu.
Guðrún Blöndal og Sindri Geir Sigurðarson gáfu ekki kost á sér áfram í stjórn sambandsins og í þeirra stað voru kjörin þau Ragnheiður Helga Bæringsdóttir og Alexander Örn Skjaldarson. Að öðru leyti er stjórn óbreytt. Í varastjórn voru endurkjöin þau Skjöldur Orri Skjaldarson og Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir.
Tilkynnt var um Íþróttamanneskju UDN 2025 sem er Laufey Fríða Þórarinsdóttir. Hvatningarverðlaun UDN hlutu þau Ingibjörg Jóhannsdóttir, Guðmundur Kári Þorgrímsson og fræðslunefnd Hestamannafélagsins Glaðs. Drifskaftið - hvatningarverðlaun ungmenna 14 -16 ára, eru afhent ungmennum sem sinna íþrótt sinni vel, eru jákvæð og góðar fyrirmyndir. Drifskaftið að þessu sinni hlutu Lauga Björg Eggertsdóttir og Aðalheiður Rós Unnsteinsdóttir en báðar æfa þær hjá Hestamannafélaginu Glað.
Gestir þingsins voru Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, Álfheiður Sverrisdóttir og Emilía Halldórsdóttir, svæðisfulltrúar svæðisstöðvarinnar á Vesturlandi, auk Ísaks Sigfússonar, lýðheilsufulltrúa Dalabyggðar. Hafsteinn ávarpaði þingið og flutti kveðjur frá framkvæmdastjórn og starfsfólki ÍSÍ og færði þakkir þeirra fyrir gott samstarf og einnig fyrir allt það góða starf sem unnið er á svæði UDN. Hann sæmdi, samkvæmt samþykkt framkvæmdastjórnar ÍSÍ, þær Ernu Hjaltadóttur og Gunnlaugu Arngrímsdóttur Silfurmerki ÍSÍ en báðar hafa þær unnið gott og óeigingjarnt starf fyrir UDN og Umf. Æskuna. Gunnlaug gat ekki mætt til þings en dótturdóttir hennar tók við viðurkenningunni fyrir hennar hönd. Hér má lesa um helstu störf þeirra Ernu og Gunnlaugar:
Erna Hjaltadóttir (1950) Ungmennafélaginu Æskunni - UDN
Erna hefur verið viðloðandi íþróttastarf á ýmsan hátt. Setið í stjórnum, unnið á mótum, og sinnt iðkendum með ýmsu móti svo eitthvað sé nefnt. Erna sat hvað lengst í stjórn UDN sem ritari, árin kringum 1990. Þá var að ýmsu að hyggja, t.d. útgáfa blaðs, fjáraflanir, frjálsíþróttamót, knattspyrnumót kvenna, karla og barna, gerða reglugerða, innanhúsmót og uppbygging vallar svo eitthvað sé nefnt. Erna var/er ósérhlífin, úrræðagóð, drífandi og góð í samvinnu. Ein af þeim sem bar ekki mikið á en vann mikið og vel hið ósýnilega starf við undirbúning hinna ýmsu verkefna sem voru á borði stjórnar UDN. Slíkt fólk er ómissandi er haft eftir samtímamanni Ernu í stjórn UDN.
Gunnlaug Arngrímsdóttir, Ungmennafélaginu Æskunni - UDN
Gunnlaug Arngrímsdóttir, Gulla, sinnti formennsku fyrir Ungmennafélag Æskunnar um árabil fyrir aldamótin 2000. Gulla var drífandi í starfinu og sinnti því af heilindum, ávallt með hagsmuni barna og ungmenna á starfssvæði Æskunnar í huga. Einnig sat hún í frjálsíþróttaráði UDN um skeið. Á formannstíma Gullu var mikið starf í aðildarfélögum UDN og að ýmsu að hyggja. Skipulag fólst m.a. í að finna þjálfara fyrir æfingar í frjálsum og knattspyrnu sem gat sinnt börnum, ungmennum og fullorðnum. Smala á mót og halda utan um skráningar fyrir innanhéraðsmót í frjálsum og fótbolta í nokkrum flokkum (kvenna, karla og barna). Félags og æfingagallar voru endurnýjaðir tvisvar á formannstíma Gullu. Fjármunir voru ekki miklir hjá Æskunni þegar Gulla hóf formennsku og vel lýsir það henni að þá keypti hún bara sjálf notaðar kringlur svo hægt væri að æfa kringlukast hjá félaginu. Vinna Gullu og kraftur skipti miklu máli fyrir iðkendur og starf Æskunnar á þessum tíma.



