ÍSÍ, UMFÍ og svæðisfulltrúar íþróttahéraðanna hafa sett af stað verkefnið Farþjálfarann. Með því geta íþróttafélög fengið til sín þjálfara í greinum sem ekki eru stundaðar á þeirra svæði.
Verkefnið er bæði fyrir félög sem vilja fá þjálfara með þekkingu á ákveðinni grein og fyrir þjálfara sem vilja bjóða upp á farþjálfun. Þjálfunin getur verið stutt námskeið, til dæmis um helgi, eða föst æfing einu sinni í viku. Þjálfari og félag ákveða það sín á milli.
Þjálfarar sem hafa áhuga skrá sig á lista yfir farþjálfara og félög sem vilja fá þjálfara til sín geta óskað eftir listanum. Einnig má hafa samband við svæðisfulltrúa.
Með Farþjálfaranum vill ÍSÍ stuðla að því að fleiri eigi kost á fjölbreyttu íþróttastarfi, óháð því hvar á landinu þeir búa. Fyrir sérsamböndin er verkefnið líka góð leið til að koma sinni grein á framfæri og ná til nýrra iðkenda. Sérsambönd, íþróttahéruð og félög eru hvött til að láta þjálfara sína vita af verkefninu.
Nánari upplýsingar, skráning og umsóknir eru á vef Svæðisstöðva íþróttahéraða: siu.is/farþjalfarinn.
Hansína Þóra Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá ÍSÍ, svarar einnig spurningum á netfanginu hansina@isi.is.
Svæðisstöðvar íþróttahéraða eru samstarfsverkefni ÍSÍ og UMFÍ.
