Ungmennasamband Skagafjarðar, UMSS hélt ársþing sitt á Sauðárkróki mánudaginn 20. apríl síðastliðinn. Mæting á þingið var góð þar sem 56 fulltrúar af 67 mögulegum sátu þingið.
Þingforseti var Halldór Lárusson sem jafnframt er annar tveggja svæðisfulltrúa á Norðurlandi vestra. Hann stýrði þinginu af röggsemi og yfirvegun. Stjórn UMSS fór yfir skýrslu fyrir árið 2025 sem og reikninga sem voru samþykktir samhljóða.
Fjölmargar tillögur lágu fyrir þinginu sem fengu umfjöllun í tveimur þingnefndum, fjárhagsnefnd og allsherjarnefnd. Allar tillögurnar voru samþykktar, sumar hverjar lítilsháttar breyttar. Meðal tillagna má nefna lagabreytingar, breytingar á reglugerð um lottóúthlutun og hvatningartillögu til aðildarfélaga UMSS um að sækja um viðurkenningu til ÍSÍ sem Fyrirmyndarfélög.
Ný tillaga varð svo til varðandi Fyrirmyndarfélög þar sem þingið hvetur UMSS til að sækja á sveitarfélagið Skagafjörð um sérstaka styrki til aðildarfélaga UMSS sem fá viðurkenningu frá ÍSÍ sem Fyrirmyndarfélög.
UMSS skrifaði undir samstarfssamning við UMFÍ og sveitarfélagið Skagafjörð um framkvæmd Unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður á Sauðárkróki í sumar.
Nýja stjórn UMSS skipa nú þau Gunnar Þór Gestsson formaður, Þuríður Elín Þórarinsdóttir gjaldkeri, Þorvaldur Gröndal ritari og þær Kolbrún Passaro og Dagbjört Rós Hermundsdóttir meðstjórnendur. Í varastjórn eru þau Freydis Þóra Bergsdóttir, Indriði Ragnar Grétarsson og Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir.
Fulltrúi ÍSÍ á þinginu var Viðar Sigurjónsson sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ.

