Ólympíuleikar ungmenna hefjast 31. október og fyrstu Íslendingarnir eru lagðir af stað. Sundfólkið Sólveig Freyja Hákonardóttir og Alexander Ari Andrason héldu í morgun til Dakar í Senegal ásamt þjálfara og fylgdarfólki. Skylmingamaðurinn Ari Vilberg Jónasson bætist svo í hópinn 9. nóvember ásamt þjálfara sínum.
Leikarnir standa yfir frá 31. október til 13. nóvember og verða sögulegir því þetta er í fyrsta sinn sem íþróttaviðburður á vegum Alþjóðaólympíunefndarinnar er haldinn í Afríku. Ísland á þrjá keppendur á leikunum, tvo í sundi og einn í skylmingum.
Með keppendunum í för eru þjálfararnir Hrafnhildur Lúthersdóttir í sundi og Gunnar Egill Ágústsson í skylmingum. Brynja Guðjónsdóttir aðalfararstjóri og Ólafur Engilbert Árnason sjúkraþjálfari verða með hópnum allan tímann.

Sund:
Sundfólkið keppir í sínum greinum dagana 1.–6. nóvember. Dagskrá sundkeppninnar má finna á vef leikanna.
Sólveig Freyja keppir í 200 m og 400 m skriðsundi og 50 m baksundi. Hún æfir hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar þar sem þjálfari hennar er Dadó Fenrir og hefur keppt frá árinu 2016. Sólveig Freyja er Norðurlandameistari unglinga og hefur þegar safnað reynslu á Evrópumeistaramóti unglinga, EYOF og Smáþjóðaleikunum. Fyrirmynd hennar er kanadíska sundstjarnan Summer McIntosh og utan laugarinnar spilar hún á píanó og teiknar. Markmiðið er einfalt: að hafa gaman og gera sitt besta.
Alexander Ari keppir í 50 m, 100 m og 200 m flugsundi. Hann æfir hjá sænska félaginu Solna Sundbyberg SS 04 þar sem þjálfari hans er Mikael Wåhlin og hann hefur keppt þar frá árinu 2022. Alexander horfir langt fram á veginn því stóra markmiðið eru Ólympíuleikarnir í Los Angeles 2028. Í frítímanum er hann í ræktinni eða spilar tölvuleiki.

Skylmingar:
Keppt verður á lokadegi leikanna, 13. nóvember. Dagskrá má finna á vef leikanna.
Ari Vilberg keppir í höggsverði (sabre) 13. nóvember, á lokadegi leikanna. Hann æfir hjá Skylmingafélagi Reykjavíkur þar sem þjálfari hans er Gunnar Egill Ágústsson. Ari byrjaði að keppa árið 2022, aðeins ári eftir að hann hóf æfingar. Síðan hefur hann orðið bæði Reykjavíkur- og Íslandsmeistari og keppt tvisvar á heimsmeistaramótum, bæði U18 og U20. Uppáhaldsskylmingamenn Ara eru Ungverjinn Áron Szilágyi og Suður-Kóreumaðurinn Oh Sang-uk og þess á milli spilar hann tölvuleiki.
ÍSÍ óskar keppendum og fylgdarfólki góðrar ferðar og góðs gengis. Fylgist með íslenska hópnum á miðlum ÍSÍ meðan á leikunum stendur!
