65. ársþing Frjálsíþróttasambands Íslands (FRÍ), fór fram í Skógarseli dagana 10. – 11. apríl sl.
Freyr Ólafsson, sem gegnt hefur formannsembætti í sambandinu síðastliðin 10 ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Sveinn Margeirsson var kjörinn nýr formaður FRÍ og með honum í aðalstjórn voru kjörin Katrín Jakobsdóttir, Trausti Stefánsson, Rannveig Oddsdóttir og Sonja Sif Jóhannsdóttir.
Í varastjórn voru kjörin Jón Örn Árnason, Hafdís Ósk Pétursdóttir, Áslaug Pálsdóttir, Ásgeir Sveinsson og J. Haukur Björnsson.
Hjördís Guðmundsdóttir úr framkvæmdastjórn ÍSÍ ávarpaði þingið við þingsetningu og afhenti heiðursviðurkenningar fyrir hönd framkvæmdastjórnar ÍSÍ. Freyr, fráfarandi formaður, var sæmdur Gullmerki ÍSÍ og Sonja Sif Jóhannsdóttir og Örvar Ólafsson voru sæmd Silfurmerki ÍSÍ.
Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ sótti þingið á seinni þingdegi og ávarpaði þingfulltrúa við það tækifæri.
Ýmsar heiðranir voru einnig á vegum FRÍ á ársþinginu og má sjá hóp heiðurshafa með fráfarandi formann FRÍ á mynd hér neðst í fréttinni.
Lesa má nánar um ársþingið á heimasíðu FRÍ.




