Ársþing Ungmennasambands Austur-Húnvetninga (USAH) fór fram 21. mars síðastliðinn í Húnaskóla. Halldór Lárusson, svæðisfulltrúi svæðisstöðvar ÍSÍ og UMFÍ á Norðurlandi vestra, stýrði þinginu. Vel var mætt á þingið af hálfu fulltrúa af svæðinu, þrátt fyrir rysjótt veður þennan dag.
Snjólaug M. Jónsdóttir sem hefur gegnt formannsembætti hjá sambandinu síðustu fjögur árin, gaf ekki kost á sér áfram í embættið og var Auðunn Steinn Sigurðsson kjörinn nýr formaður USAH. Hann hefur átt sæti í stjórn sambandsins áður og þekkir vel til starfsemi þess. Aðrir í stjórn eru Hörður Ríkharðsson gjaldkeri, Sara Björk Þorsteinsdóttir ritari og meðstjórnendurnir Guðjón Ebbi Guðjónsson og Óli Jónas Valdemarsson.
Á þinginu var því fagnað að Umf. Fram á Skagaströnd fyllir 100 árin á árinu og ýmsar heiðursviðurkenningar voru veittar, bæði frá ÍSÍ og UMFÍ.
Snjólaug M. Jónsdóttir, fráfarandi foramaður, Finnbogi Guðmundsson frá Umf. Fram og Golfklúbbi Skagastrandar og Valur Valsson frá Hestamannafélaginu Neista, voru sæmd Silfurmerki ÍSÍ á þinginu. Vegna óveðurs og ófærðar þá komst því miður enginn frá ÍSÍ á þingið en viðurkenningunum var komið til viðkomandi eftir á.
USAH veitti Ólafi S. Benediktssyni Hvatningarverðlaun USAH fyrir heilsueflingu á starfssvæði sambandsins.
ÍSÍ óskar heiðurshöfunum innilega til hamingju og nýjum formanni og stjórnarfólki til hamingju með kjörið.
Meðfylgjandi forsíðumynd er af Auðunni Stein Sigurðssyni, nýjum formanni USAH. Ljósmyndari: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson

