Fulltrúar íslenskra siglingafélaga tóku nýverið þátt í fræðsluferð til Noregs þar sem heimsótt voru siglingafélög og starfsemi þeirra kynnt. Markmið ferðarinnar var að efla þekkingu, miðla reynslu og skoða hvaða lærdóm mætti nýta til að þróa starfsemi hér á landi enn frekar.
Ferðin var styrkt af Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins sem styður við alþjóðlegt samstarf, fræðslu og nýsköpun í íþróttastarfi. Slík verkefni gefa íþróttahreyfingunni tækifæri til að byggja upp tengsl, skiptast á góðum starfsháttum og þróa starf sitt í samstarfi við erlenda aðila.
Þátttaka af þessu tagi undirstrikar þau tækifæri sem sérsamböndum innan ÍSÍ standa til boða með Erasmus+ styrkjum. ÍSÍ hvetur sérsambönd til að kynna sér þá möguleika vel og nýta þá til að efla eigið starf, styrkja alþjóðlegt samstarf og auka gæði íþróttastarfs á Íslandi.
Áhugasamir geta haft samband við Þórarinn Alvar Þórarinsson (alvar@isi.is) til að fá frekari upplýsingar um styrki og umsóknarferlið.
Lesa má nánar um ferðina til Noregs hér á heimasíðu Siglingasambands Íslands.
