Fara í efni

Fyrsta skóflustungan að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal var tekin við hátíðlega athöfn í dag, fimmtudaginn 12. nóvember. Umræða um Þjóðarhöll hefur staðið í rúm þrjátíu ár og hefur íþróttahreyfingin því beðið þessa dags lengi. Ungt afreksíþróttafólk úr ýmsum greinum fékk þann heiður að taka skóflustunguna í snjókomunni.

Athöfnin hófst í Laugardalshöll þar sem margt var um manninn. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, flutti ávarp fyrir hönd íþróttahreyfingarinnar. Aðrir sem tóku til máls voru Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, Hildur Björnsdóttir borgarstjóri, Thomas Möller stjórnarformaður Þjóðarhallar ehf. og Sveinbjörn Jónsson verkefnastjóri hjá Íslenskum aðalverktökum. Að ávörpunum loknum var gengið yfir á byggingarsvæðið sunnan við Laugardalshöll þar sem skóflustungan sjálf fór fram.

„Í íþróttum lærum við þrautseigju og þolinmæði. Af henni eigum við nóg og nú erum við loksins komin á þennan áfangastað,“ sagði Willum í ávarpi sínu. Hann þakkaði ríki og borg fyrir þeirra hlut og leit fram á veginn: „Látum þessi tímamót jafnframt verða frekari hvatningu til uppbyggingar í framtíðinni.“

Skóflustunguna tóku:

  • Helga Jenný Vigfúsdóttir, Handknattleikssambandi Íslands
  • Hulda María Agnarsdóttir, Körfuknattleikssambandi Íslands
  • Fjölnir Logi Halldórsson, Blaksambandi Íslands
  • Þorsteinn Orri Ólafsson, Fimleikasambandi Íslands
  • Hjalti Björnsson, Glímufélaginu Ármanni
  • Saga Björgvinsdóttir, Knattspyrnufélaginu Þrótti

Með þeim stóð forystufólk sérsambandanna og félaganna.

Nýr heimavöllur landsliðanna
Laugardalshöll hefur þjónað íslensku íþróttafólki frá árinu 1965 en uppfyllir ekki lengur alþjóðlegar kröfur um keppnisaðstöðu. Landsliðin hafa því leikið heimaleiki sína þar á undanþágu. Á sama tíma hefur íþróttastarfið vaxið og íslenskt íþróttafólk náð góðum árangri á alþjóðavettvangi. Með nýrri Þjóðarhöll getur Ísland tekið á móti öðrum þjóðum í keppni við okkar besta fólk á heimavelli við hæfi. Þá batnar æfingaaðstaða barna og ungmenna til muna.

Þjóðarhöllin verður fjölnota hús sem nýtist jafnt fyrir innanhússíþróttir og menningu, kennslu og hvers kyns viðburði. Á kappleikjum verða 8.600 sæti en á tónleikum og öðrum samkomum rúmar höllin allt að 12.000 manns. Hún verður um 17.700 fermetrar, tengist bæði Laugardalshöll og Frjálsíþróttahöllinni og verður hönnuð með aðgengi fyrir alla í huga.

Tilbúin fyrir HM 2031
Stefnt er að verklokum í janúar 2030. Ný höll er forsenda þess að Ísland geti haldið HM karla í handknattleik 2031 ásamt Danmörku og Noregi. Gangi allt eftir verður riðill leikinn í höllinni og jafnvel milliriðill. Mótið setur verkinu skýran tímaramma og nú þegar framkvæmdir eru hafnar ríkir bjartsýni innan íþróttahreyfingarinnar.

Ríki og Reykjavíkurborg fjármagna verkefnið og Íslenskir aðalverktakar sjá um hönnun og byggingu.

ÍSÍ fagnar þessum langþráðu tímamótum og óskar íþróttahreyfingunni og þjóðinni allri til hamingju með þennan merkisdag.

/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4326.jpg?v=1794520849
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4356.jpg?v=1794520851
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4415_skorin.jpg?v=1794525895
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4413.jpg?v=1794523516
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4366.jpg?v=1794524745
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4403.jpg?v=1794523498
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4400.jpg?v=1794523496
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4389.jpg?v=1794523490
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4398.jpg?v=1794523488
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4316.jpg?v=1794523485
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_4399.jpg?v=1794523483