Göngum í skólann er lokið fyrir árið 2026 og tóku 55 grunnskólar þátt. Verkefnið hvetur börn og foreldra til að nota virkan og öruggan ferðamáta til og frá skóla, með áherslu á hreyfingu, umhverfisvitund og lýðheilsu.
Göngum í skólann er hluti af alþjóðlegu verkefni sem nær til milljóna barna víða um heim og fellur jafnframt undir Íþróttaviku Evrópu. Það stuðlar að heilbrigðum lífsstíl, minni umferð við skóla og aukinni umhverfisvitund.
Í ár voru tímamót, því verkefnið var haldið hér á landi í tuttugasta sinn. Frá árinu 2007 hafa fjölmargir skólar verið með ár eftir ár og skapað sterka hefð fyrir daglegri hreyfingu. Grenivíkurskóli og Grundaskóli á Akranesi hafa tekið þátt öll árin. Álftanesskóli, Hofsstaðaskóli og Laugarnesskóli hafa verið með nær samfellt frá upphafi, sem og Brekkuskóli, Glerárskóli og Síðuskóli á Akureyri.
Þátttakan var heldur minni en síðustu ár. Í fyrra voru skólarnir 64 og árið 2024 voru þeir 72. Þeir skólar sem voru með eiga hrós skilið. Verkefnið styður vel við starf margra skóla, svo sem Heilsueflandi grunnskóla, og nýtist í kennslu og sjálfbærnimenntun. ÍSÍ vonast til að enn fleiri skólar verði með á næsta ári.
Í lok verkefnisins voru þrír þátttökuskólar dregnir út og hlaut hver þeirra 150.000 króna gjafabréf frá Altis í þátttökuverðlaun. Gjafabréfin má nota til kaupa á íþróttabúnaði fyrir íþróttakennslu eða skólalóð. Í ár voru það Borgarskóli, Lundarskóli og Grunnskóli Hornafjarðar.
ÍSÍ þakkar samstarfsaðilum verkefnisins: Samgöngustofu, ríkislögreglustjóra, mennta- og barnamálaráðuneytinu, Heimili og skóla, embætti landlæknis, Slysavarnafélaginu Landsbjörg og #BeActive-verkefni Evrópusambandsins.
Í tilefni tímamótanna birtum við nokkrar skemmtilegar myndir frá liðnum árum.
Takk fyrir þátttökuna og takið frá 1. september 2027!



