Tæplega 250 manns mættu á Hótel Selfoss 31. maí síðastliðinn og fögnuðu 90 ára afmæli Ungmennafélags Selfoss. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ voru viðstaddir og afhentu við það tilefni gullmerki ÍSÍ til þriggja einstaklinga fyrir framúrskarandi framlag til íslenskrar íþróttahreyfingar.
GULLMERKI ÍSÍ
Marteinn Sigurgeirson. Marteinn var einn af þeim sem hóf snemma að taka upp, á upptökuvél, ýmislegt tengt starfi íþróttahreyfingarinnar. Árið 1963 ætlaði hann að kaupa sér myndavél í verslun Kaupfélags Árnesinga á Selfossi, en hún var ekki til en það var til kvikmyndatökuvél og þá varð ekki aftur snúið. Hann tók þátt í öflugu félagsstarfi félagsins bæði sem keppandi og stjórnandi. Eftir hann liggur mikið af fágætu efni frá sögu uppbyggingar Selfoss og UMFS. Hann stóð m.a að gerð myndar um sögu landsmóta UMFÍ á Suðurlandi, með fjölda viðtala og gömlum upptökum og einnig um sögu knattspyrnunnar á Selfossi. Hann í samstarfi við sögu- og minjanefnd félagsins hefur stuðlað að varðveislu fágæts myndefnis úr sögu félagsins. Hann starfaði einnig í nefndum hjá HSK, svo sem knattspyrnunefnd og nefnd um sögu landsmóta UMFÍ.
Jón Birgir Guðmundsson. Jón Birgir hóf snemma að æfa íþróttir hjá félaginu og varð afreksmaður í frjálsum iþróttum, strax á unga aldri. Hann varð snemma félagsmálamaður og sat í stjórn frjálsíþróttadeildar félagsins, harðfylginn sér í uppbyggingu deildarinnar. Síðar fylgdi hann syni sínum yfir í starf handknattleiksdeildar en atvinnumaðurinn Elvar Jónsson, í handbolta, er sonur hans. Þar lá hann ekki á liði sínu við uppbyggingu deildarinnar og ýmsum sjálfboðaliða störfum. Jóndi eins og hann er oftast kallaður er menntaður sjúkraþjálfari og hefur fylgt liði Selfoss á ófáa leiki, einnig landsliðum Íslands. Hann er einn af þeim sem ekki hefur hátt en er fylginn sér og hefur lagt íþróttahreyfingunni lið sitt í yfir 40 ár, sá sem alltaf er hægt að treysta á og er alltaf tilbúinn að leggja hönd á plóg ef hægt er. Jón Birgi var veitt gullmerki UMFS árið 2023 og silfurmerki félagsins árið 2017.
Sigríður Anna Guðjónsdóttir. Sigríður byrjaði snemma að æfa frjálsar íþróttir og gerði garðinn frægan þar m.a með landsliðum Íslands í frjálsum. Þegar konum var leyft í fyrsta skipti að keppa í þrístökki, varð það hennar aðalgrein og átti hún Íslandsmet í greinni til fjölda ára. Eftir að keppnisferlinum lauk tók við þjálfun barna- og unglinga í áratugi, ásamt því að sitja í stjórn frjálsíþróttadeildar. Síðan tók við framkvæmdastjórn deildarinnar þar til hún lét af því starfi nýlega. Sigríður hefur setið í ráðum á vegum HSK og nefndum hjá FRÍ. Hún hefur verið virk í því að styðja við og hvetja börn og unglinga til að stunda íþróttir og heilbrigðan lífstíl. Henni hafa verið veittar ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín. Hún hlaut silfurmerki HSK árið 2016, gullmerki félagsins árið 2017 og silfurmerki UMFÍ árið 2019. Gullmerki FRÍ árið 2022.