Fara í efni

ÍSÍ hrindir af stað verkefninu Göngum í skólann í samstarfi við fjölda aðila miðvikudaginn 9. september næstkomandi. Verkefnið er nú haldið í tuttugasta sinn og hefur á þeim tíma orðið fastur liður í upphafi skólaárs hjá fjölmörgum grunnskólum landsins.

Á hverju ári taka milljónir barna um allan heim þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Á Íslandi hefur þátttakan aukist jafnt og þétt frá upphafi verkefnisins. Fyrsta árið tóku 26 skólar þátt en árið 2025 voru þátttökuskólarnir alls 65.

Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að velja virkan ferðamáta til og frá skóla og efla um leið færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Einföld leið til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að ganga, hjóla, hlaupa eða nýta annan virkan ferðamáta. Ávinningurinn felst ekki aðeins í aukinni hreyfingu og bættri líðan heldur einnig í því að draga úr umferð og stuðla að umhverfisvænni samgöngum.

Göngum í skólann hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður í mörgum skólum. Verkefnið gefur nemendum tækifæri til að fræðast um umferðaröryggi, umhverfismál og mikilvægi hreyfingar á lifandi og skemmtilegan hátt.

Skólar sem vilja taka þátt geta skráð sig á heimasíðu verkefnisins - http://www.gongumiskolann.is/skraning/  - Við skráningu þarf að tilgreina nafn skóla og tengiliðs ásamt stuttri lýsingu á því hvernig skólinn hyggst taka þátt í verkefninu. 

Göngum í skólann lýkur 7. október sem jafnframt er alþjóðlegur Göngum í skólann dagur árið 2026.

Samstarfs- og styrktaraðilar verkefnisins eru European Commission, Samgöngustofa, Heimili og skóli, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Embætti landlæknis, ríkislögreglustjóri og Slysavarnarfélagið Landsbjörg.

Nánari upplýsingar veitir Linda Laufdal, verkefnastjóri á Fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ, í síma 514 4016 eða á netfanginu linda@isi.is.