Fara í efni

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur ákveðið að veita taekwondomanninum Guðmundi Flóka Sigurjónssyni norrænan styrk sem fjármagnaður er af Lars Weinaa Foundation í Danmörku. Þetta er í annað sinn sem styrkurinn er veittur en í fyrra hlaut frjálsíþróttakonan Eir Chang Hlésdóttir hann. Styrkurinn er ætlaður ungu og efnilegu íþróttafólki á Norðurlöndunum og hlýtur einn íþróttamaður frá hverju landi hann.

Til að hljóta styrkinn þarf íþróttafólk að vera á aldrinum 16–21 árs, efnilegt í sinni íþrótt og góð fyrirmynd innan vallar sem utan. ÍSÍ óskaði í haust eftir tilnefningum frá sérsamböndum og tilnefndi Taekwondosamband Íslands Guðmund Flóka. Valið fór svo fram hjá Afreksmiðstöð Íslands. Styrkurinn nemur 16.000 evrum eða um 2,5 milljónum króna og er meðal annars ætlaður til að mæta kostnaði vegna æfinga og keppni. Guðmundur Flóki kom á skrifstofu ÍSÍ í vikunni og skrifaði undir samning vegna styrksins.

Guðmundur Flóki er 18 ára og æfir hjá KR. Hann er í hópi efnilegasta íþróttafólks landsins og hafnaði til að mynda í 5. sæti á Evrópumóti í flokki fullorðinna sem er frábær árangur. Auk þess hefur hann unnið til fjölda verðlauna á alþjóðlegum mótum. Stefnan er sett á Ólympíuleikana og styrkurinn kemur sér vel á þeirri leið.

Markmiðið með þessum stuðningi er að létta undir með ungu og efnilegu íþróttafólki, gera því kleift að æfa af kappi og taka næstu skref á íþróttaferlinum.

/cdn/media/Frettamyndir/gudmundur-floki2.jpg?v=1795778471