Fara í efni

Árlegur formannafundur Íþróttabandalags Reykjanesbæjar (ÍRB) fór fram í síðustu viku. Fundurinn var sérstakur að þessu sinni því nú eru 30 ár liðin frá stofnun ÍRB. Bandalagið var formlega stofnað 29. maí 1996.

Á formannafundinn koma saman formenn allra aðildarfélaga ÍRB ásamt stjórn bandalagsins. Í tilefni afmælisins var hann stærri en venjulega og mættu yfir 50 manns. Mikill hugur var í fundargestum að efla íþróttastarf í Reykjanesbæ enn frekar. Meðal gesta, sem jafnframt fluttu ávörp, voru Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ. Auk Willums sóttu fundinn fyrir hönd ÍSÍ þeir Andri Stefánsson framkvæmdastjóri og Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn.

Að loknu ávarpi sínu veitti Willum Þór tveimur núverandi stjórnarmönnum ÍRB viðurkenningu fyrir áratuga sjálfboðaliðastarf í þágu íþróttahreyfingarinnar. Hjördís Baldursdóttir, gjaldkeri ÍRB, hlaut silfurmerki ÍSÍ og Rúnar V. Arnarson, formaður ÍRB, hlaut gullmerki ÍSÍ.

ÍSÍ óskar ÍRB innilega til hamingju með 30 ára afmælið. Þá óskar ÍSÍ Hjördísi og Rúnari til hamingju með verðskuldaðar viðurkenningar.