Fara í efni

Anný Ingimarsdóttir, ritari stjórnar HSK, og Gylfi Þorkelsson, fyrrverandi formaður Körfuknattleiksfélags Selfoss, voru sæmd gullmerki ÍSÍ á 104. héraðsþingi HSK, sem haldið var í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi þann 26. mars.

Hafsteinn Pálsson, formaður Heiðursráðs ÍSÍ og meðstjórnandi í framkvæmdastjórn ÍSÍ, afhenti þeim viðurkenninguna fyrir hönd framkvæmdastjórnar ÍSÍ.

Anný Ingimarsdóttir

Anný Ingimarsdóttir hefur setið í fjölmörgum nefndum á vegum HSK allt frá árinu 1990. Undanfarin 15 ár hefur hún setið í stjórn HSK og gegnir embætti ritara sambandsins.

Anný var formaður Ungmennafélagsins Samhygðar í Hraungerðishreppi á árunum 1990 til 1993. Hún mætti á sitt fyrsta héraðsþing HSK árið 1989 fyrir hönd Samhygðar og hefur sótt flest þing sambandsins síðan þá. Hún hefur jafnframt verið fulltrúi HSK á fjölmörgum þingum ÍSÍ og UMFÍ.

Anný á að baki langan keppnisferil í frjálsum íþróttum og blaki. Hún varð meðal annars þrefaldur landsmótsmeistari í frjálsum íþróttum í sínum aldursflokki á Landsmóti 50+ síðastliðið sumar.

Gylfi Þorkelsson

Gylfi Þorkelsson hefur áratugum saman verið virkur í íþróttastarfi, bæði innan vallar sem utan. Hann var meðal annars í liði Ungmennafélags Laugdæla sem varð Íslands- og bikarmeistari í blaki árið 1980.

Gylfi lék körfuknattleik í efstu deild með Val, ÍR og Keflavík og lék á árunum 1985 til 1987 alls 22 landsleiki fyrir Íslands hönd. Síðar var hann spilandi þjálfari hjá Reyni Sandgerði, Ungmennafélagi Laugdæla og Ungmennafélagi Selfoss.

Hann þjálfaði einnig yngri flokka á Selfossi og vann með þeim tvo Íslandsmeistaratitla. Gylfi var formaður körfuknattleiksdeildar Ungmennafélags Selfoss á árunum 1997 til 2004. Frá 2015 til 2023 var hann formaður Körfuknattleiksfélags FSu og síðar Körfuknattleiksfélags Selfoss, eftir að nafn félagsins var breytt vorið 2018.