Skráning er hafin í haustfjarnám í þjálfaramenntun ÍSÍ á 1. og 2. stigi sem hefst mánudaginn 14. september. Námið er almennur hluti menntakerfis þjálfaramenntunar ÍSÍ og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ.
Skráning:
Skráning fer fram í gegnum Abler á https://www.abler.io/shop/isi. Nemendur velja viðeigandi námskeið og ganga frá greiðslu í heimabanka. Nýir notendur í Sportabler þurfa að stofna aðgang undir „Nýr notandi“. Upplýsingar um verð er að finna við skráningu.
Hvað segja þátttakendur?
„Hversu djúpt er farið í námsefnið og að það sé alþjóðlega tengt, í takti við það sem er verið að gera út í heimi.“
„Mjög gagnlegt nám og mikilvægt að þjálfarar og þeir sem hafa áhuga á þjálfarastarfinu geti sótt það á svona einfaldan máta.“
Nánari upplýsingar:
Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ
Sími: 514 4000 / 863 1399
Netfang: vidar@isi.is
