Valdimar Örnólfsson var frækinn íþróttamaður og vann marga sigra á þeim vettvangi. Hann var einnig leiðtogi í íþróttahreyfingunni og var meðal annars fyrsti formaður Fimleikasambands Íslands. Einnig var hann formaður Íþróttanefndar ríkisins um langt árabil.
Valdimar keppti á Vetrarólympíuleikunum í Cortina árið 1956 þar sem hann var fánaberi íslenska hópsins og fór sem þjálfari og fararstjóri á Vetrarólympíuleikana í Innsbruck 1964 þar sem hann var einnig fánaberi. Hann átti mikið í uppbyggingu skíðaíþróttarinnar á Íslandi, ekki síst með stofnun Skíðaskólans í Kerlingafjöllum, sem hann stýrði með sínum einstaka hætti í um 40 ár. Eins má ætla að Valdimar hafi haft áhrif á fjölda einstaklinga með kennslu í MR og sem íþróttastjóri HÍ, svo ekki sé minnst á morgunleikfimina í útvarpinu, sem var mikils metin um land allt og fastur punktur á mörgum heimilum. Með þessum störfum hefur hann án efa leitt marga á braut íþrótta og heilsubætandi lífshátta. Valdimar var sannarlega mikill frumkvöðull á sviði lýðheilsu og forvarna, talsmaður og kyndilberi um langa hríð og lagði mikið af mörkum á því sviði til allrar þjóðarinnar.
Valdimar var fyrsti formaður fræðsluráðs Ólympíuakademíu Ólympíunefndar Íslands og var vel til þess fallinn, með reynslu af þátttöku í Ólympíuleikum í farteskinu. Hlutverk ráðsins var að útbreiða þekkingu um Ólympíuleika, ólympíuhreyfinguna og þær hugsjónir sem hún byggir á. Hann hlaut bæði Gullmerki ÍSÍ og Heiðurskross ÍSÍ fyrir framúrskarandi störf í þágu íþrótta á Íslandi og var kjörinn Heiðursfélagi ÍSÍ á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2009. Sem slíkur var hann virkur í starfi ÍSÍ og mætti manna hressastur á viðburði sambandsins á meðan heilsan leyfði. Alltaf brosandi og jákvæður og alltaf með hvatningarorð á vörum.
Að leiðarlokum kveðjum við, stjórn og starfsfólk Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, góðan félaga með hlýju og þakklæti í hjarta fyrir langa og gefandi samleið í gegnum árin og fyrir allt hans mikla framlag til íþrótta á Íslandi. Hans verður saknað en minning hans mun lifa.
Sonum hans, Jónasi, Örnólfi, og Kristjáni og fjölskyldunni allri sendum við dýpstu samúðarkveðjur.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ


