Fara í efni

Landssamband hestamannafélaga (LH) hélt 65. landsþing sitt í Hveragerði dagana 30. og 31. október. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, flutti ávarp við setningu þingsins á föstudeginum. Hann afhenti tvær heiðursviðurkenningar ÍSÍ ásamt Hafsteini Pálssyni, formanni Heiðursnefndar ÍSÍ, sem einnig situr í framkvæmdastjórn.

Að þessu sinni voru Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir og Sigurður Sæmundsson heiðruð. Bæði hafa þau sett sterkan svip á sögu hestaíþrótta á Íslandi, hún í reiðkennslu og æskulýðsstarfi en hann sem keppnisknapi og landsliðseinvaldur.

Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir – Heiðurskross ÍSÍ
Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir var sæmd heiðurskrossi ÍSÍ, æðstu heiðursviðurkenningu íþróttahreyfingarinnar. Viðurkenningin er veitt einstaklingum fyrir frábært, ómetanlegt og langvarandi starf í þágu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi.

Rosemarie er reiðkennari og einn af frumkvöðlum íslenskrar hestamennsku. Hún lærði klassíska reiðmennsku í virtum reiðskóla í Þýskalandi. Árið 1964 stofnaði hún Reiðskólann í Vestra-Geldingaholti, fyrsta reiðskólann á Íslandi í einkaeigu, og rak hann í 53 ár. Skólinn var heimavistarskóli þar sem börn dvöldu í 7–14 daga og mörg þeirra komu sumar eftir sumar. Um 5.000 börn og unglingar lærðu reiðmennsku hjá Rosemarie og lögðu mörg hver þar grunninn að sinni hestamennsku. Hún var ákveðinn en hlýr skólastjóri og þótti hjartanlega vænt um nemendur sína.

Rosemarie vann einnig mikið að æskulýðsmálum innan LH og FEIF, alþjóðasamtaka íslenska hestsins. Í fjölda ára var hún liðsstjóri íslenskra unglinga á FEIF Youth Cup. Hún hlaut heiðursverðlaun LH árið 2007 og gullmerki ÍSÍ árið 2009.

Sigurður Sæmundsson – Gullmerki ÍSÍ
Sigurður Sæmundsson var sæmdur gullmerki ÍSÍ. Það er veitt einstaklingum fyrir framúrskarandi störf, sjálfboðaliðastarf eða framlag til íslenskrar íþróttahreyfingar.

Sigurður á að baki glæsilegan feril í hestaíþróttum. Hann keppti fyrst fyrir Íslands hönd á Evrópumeistaramótinu í Sviss árið 1972. Alls keppti hann á fimm Evrópu- og heimsmeistaramótum og vann þar tvenn gullverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Að keppnisferlinum loknum varð hann landsliðseinvaldur og liðsstjóri íslenska landsliðsins og gegndi því hlutverki allt til ársins 2007. Sigurður hefur áður hlotið gullmerki LH og heiðursverðlaun LH, æðstu viðurkenningu sambandsins.

Þingstörf og stjórnarkjör
Á þinginu sjálfu fóru fram hefðbundin þingstörf og kosning stjórnar fyrir tímabilið 2026–2028. Linda Björk Gunnlaugsdóttir var endurkjörin formaður en hún hefur gegnt embættinu síðustu tvö ár. Sjálfkjörið var bæði í embætti formanns og í stjórn. Þá hlutu átta einstaklingar gullmerki LH.

Nánar má lesa um nýja stjórn LH á vef LH.

ÍSÍ óskar heiðurshöfunum innilega til hamingju og nýrri stjórn LH velfarnaðar í störfum sínum.

/cdn/media/Frettamyndir/Rosemarie-Brynhildur-Heidurskross-ISI.png?v=1793914707
Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir – Heiðurskross ÍSÍ
/cdn/media/Frettamyndir/Sigurdur-Saemundsson_gullmerki.png?v=1793914716
Sigurður Sæmundsson – Gullmerki ÍSÍ