Fara í efni

Ragnhildur Skúladóttir, sviðsstjóri, og Linda Laufdal, sérfræðingur á fræðslu- og almenningsíþróttasviði, sóttu 29. heimsþing TAFISA í Prag í Tékklandi dagana 13.–17. maí 2026. Um er að ræða alþjóðlega ráðstefnu um almenningsíþróttir sem haldin er reglulega.

Yfirskrift þingsins að þessu sinni var „Sport for All: Building Bridges for Inclusion, Equity and Harmony“ og var lögð áhersla á mikilvægi hreyfingar og íþrótta fyrir alla með sérstöku tilliti til eflingar lýðheilsu, félagslegrar þátttöku og samheldni í samfélögum. Erindi fluttu sérfræðingar, stefnumótendur og fagfólk víðs vegar að úr heiminum.

Á dagskránni voru fjölbreyttir fyrirlestrar, pallborðsumræður og vinnustofur þar sem fjallað var um þátttöku allra aldurshópa í hreyfingu, tengsl kynslóða, samfélagsþróun, loftslagsmál, stafræna þróun og hlutverk íþrótta við að efla aðlögun og inngildingu, til dæmis meðal innflytjenda og flóttafólks.

Á þinginu fór jafnframt fram kjör nýs forseta TAFISA. Janez Sodržnik frá Slóveníu tók við embættinu af Wolfgang Baumann frá Þýskalandi.

Þingið er mikilvægur vettvangur fyrir miðlun þekkingar, reynsluskipti og tengslamyndun meðal aðila sem vinna að sambærilegum markmiðum á alþjóðavísu. Sérstök áhersla er lögð á að þróa nýjar lausnir til að efla hreyfingu almennings og stuðla að virkari lífsstíl um allan heim.

TAFISA (The Association for International Sport for All) eru alþjóðleg samtök sem vinna að því að efla þátttöku í hreyfingu og íþróttum fyrir alla, óháð aldri, getu eða bakgrunni. Samtökin líta á hreyfingu sem lykilþátt í bættri heilsu og sterkari samfélögum.

Þátttaka Ragnhildar og Lindu í þinginu styrkir tengsl við alþjóðlegt samstarf á sviði almenningsíþrótta og veitir dýrmætan innblástur og þekkingu sem nýtist í áframhaldandi þróun verkefna innanlands.

Ísland er fyrirmynd á alþjóðavettvangi þegar kemur að jafnrétti og aðgengi, og því er mikilvægt að Ísland taki virkan þátt í slíku samstarfi.

Næsta heimsþing TAFISA verður haldið í Gaborone í Botswana árið 2028.

Nánari upplýsingar um umfjöllunarefni og áherslur heimsþingsins má finna hér:
https://www.tafisacongress-prague2026.com/program/

Auk þess má finna frekari upplýsingar um TAFISA og starfsemi samtakanna hér:
https://www.tafisa.org/

Fiona Chambers flutti áhugavert erindi um gervigreind og íþróttir
Nýkosin stjórn TAFISA
Nýkosin stjórn TAFISA
Nýr forseti Tafisa Janez Sodrznik frá Slóveníu
Sendinefnd frá Botswana