Hestamannafélagið Fákur hefur bæst í hóp fyrirmyndarfélaga ÍSÍ og hlaut viðurkenningu þess efnis við hátíðlega athöfn á Reykjavíkurmeistaramóti Fáks í Víðidal um helgina. Mótið er stærsta hestaíþróttamót íslenska hestsins í heiminum og því táknrænn vettvangur fyrir þessi mikilvægu tímamót í starfi félagsins. Reykjavíkurmeistaramótið tókst afar vel og það er einstakt að jafn stórt hestaíþróttamót skuli haldið innan borgarmarka Reykjavíkur.
Fákur hefur undanfarna mánuði unnið markvisst að því að uppfylla þau skilyrði sem ÍSÍ setur fyrir fyrirmyndarfélög, meðal annars með gerð handbókar félagsins og innleiðingu skýrra verkferla og reglna sem styðja við faglegt og skipulagt starf.
„Sem stærsta hestamannafélag landsins ber félaginu að vera gott fordæmi fyrir önnur hestamannafélög. Ramminn sem ÍSÍ setur um þau skilyrði sem þarf að uppfylla til að verða fyrirmyndarfélag er mjög góður grunnur fyrir innri verkferla og reglur sem slíkt félag þarf að hafa,“ sagði Hlíf Sturludóttir, formaður Hestamannafélagsins Fáks. Hún sagði jafnframt að handbók félagsins hefði skapað meiri skýrleika um starfsemi félagsins og reynst mikilvægt tæki fyrir stjórn, félagsmenn og iðkendur.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, afhenti Hlífi Sturludóttur viðurkenninguna og talaði við það tilefni um þau jákvæðu áhrif sem íþróttastarf hefur á vellíðan og lýðheilsu samfélagsins og mikilvægi þess að byggja upp heilbrigt, öruggt og uppbyggilegt íþróttaumhverfi fyrir iðkendur á öllum aldri. Markvisst starf, skýrir verkferlar og góð félagsmenning leggja jafnframt grunn að góðum árangri og afrekum í íþróttum.
Við athöfnina voru einnig viðstödd Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, og Ólafur Gunnarsson, gjaldkeri LH.



