Setning átaksins Hjólað í vinnuna 2026 fór fram í morgun í Elliðaárstöð. Þar hvöttu gestir landsmenn til að velja hjólið til og frá vinnu í þágu heilsu, umhverfis og aukinna lífsgæða.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, bauð gesti velkomna og rakti þróun verkefnisins frá upphafi. Hann sagði átakið hafa vaxið verulega í gegnum árin og þátttaka landsmanna endurspegli sívaxandi áhuga á hjólreiðum sem hluta af daglegum samgöngum.
Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, þakkaði ÍSÍ fyrir að halda átakinu á lofti og sagði það hafa skilað mælanlegum ávinningi fyrir lýðheilsu. Frá árinu 2003 hafa þátttakendur hjólað samanlagt um 8 milljónir kílómetra, sem jafngildir um 200 hringum í kringum jörðina.
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, fjallaði um aukna notkun virkra samgöngumáta og sagði sífellt fleiri tilbúna að hjóla til og frá vinnu þegar aðstæður leyfa.
Inga Dóra Hrólfsdóttir, sviðsstjóri hjá Náttúruverndarstofnun, lagði áherslu á tengsl hjólreiða við vellíðan, núvitund og aukna upplifun af nærumhverfinu.
Birgir Fannar Birgisson frá Reiðhjólabændum kynnti umferðaröryggisátakið GUL HJÓL, sem vekur athygli á öryggi óvarinna vegfarenda og mikilvægi aðgæslu í umferðinni.
Gunnhildur Sveinsdóttir frá SÍBS kynnti matarvefinn Gott og einfalt og minnti á mikilvægi hollrar næringar samhliða reglulegri hreyfingu.
Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir frá Krabbameinsfélaginu tók í sama streng og lagði áherslu á að heilbrigðar lífsvenjur skipti miklu máli í forvörnum og bættri líðan.
Búi Bjarmar Aðalsteinsson, stjórnandi Hjólavarpsins, sagði hjólreiðar stuðla að sterkari tengslum við bæði umhverfið og fólkið í kringum okkur og skapa líflegri borgarmenningu.
Að ávörpunum loknum var farin fyrsta sameiginlega hjólreiðaför átaksins og boðið upp á veitingar frá Mjólkursamsölunni.
ÍSÍ lýsir Hjólað í vinnuna 2026 formlega hafið í 24. sinn.
Gangi öllum vel og farið varlega í umferðinni!
Skráning fer fram hér: https://hjoladivinnuna.is/





