Fara í efni

Átakið Hjólað í vinnuna er nú hálfnað og það er óhætt að segja að það hafi farið vel af stað. Á þessari stundu eru þátttakendur orðnir 3.085 og hafa samanlagt lagt að baki 106.668 kílómetra – sem samsvarar um 82,65 hringjum í kringum landið.

Þegar skráningar eru skoðaðar nánar má sjá að hjólreiðar eru stór hluti ferða en margir velja einnig að ganga, hlaupa eða nýta sér aðra vistvæna samgöngumáta. Þátttakan er fjölbreytt og nær til vinnustaða af öllum stærðum og gerðum og víða má sjá skemmtilega keppni.

Hægt er að fylgjast með stöðunni í rauntíma og skoða tölfræðina nánar á vef átaksins:
https://hjoladivinnuna.is/stadan/allir-vinnustadir-og-tolfraedi/

Enn er nægur tími til að vera með og bæta við fleiri kílómetrum!

 Skráðu þig til leiks hér: https://hjoladivinnuna.is/