Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ) hlaut viðurkenningu sem Fyrirmyndarhérað ÍSÍ á viðburði héraðsins, Íþróttamaður ársins, sem haldinn var í Vallarhúsinu á Húsavík föstudaginn 23. október.
Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ, afhenti Jóni Sverri Sigtryggssyni, formanni HSÞ, viðurkenninguna.
Í tengslum við innleiðingu verkefnisins hefur HSÞ tekið saman gæðahandbók sem styður við starf héraðsins og aðildarfélaga þess.
„Við erum ákaflega ánægð með að vera komin í glæsilegan hóp Fyrirmyndarhéraða ÍSÍ. Handbókin verður góður leiðarvísir fyrir aðildarfélögin í starfi þeirra og mun nýtast til að viðhalda því góða og metnaðarfulla starfi sem íþróttafélög á svæðinu vinna að á hverjum degi,“ sagði Ísak Már Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri HSÞ, af þessu tilefni.
ÍSÍ óskar HSÞ til hamingju með viðurkenninguna og óskar sambandinu velfarnaðar í áframhaldandi starfi.
