Fara í efni

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar úthlutaði í dag rúmum 14,3 milljónum króna til 31 verkefnis um allt land í fyrstu úthlutun ársins 2026.

Verkefnin eru fjölbreytt og ná yfir fjölmargar íþróttagreinar. Markmið þeirra er að gera íþróttastarf aðgengilegt öllum börnum og ungmennum, óháð efnahag, uppruna eða líkamlegum aðstæðum. Meðal styrkhafa eru t.d. félög sem bjóða upp á sérsniðið starf fyrir börn með fötlun og stuðningsþarfir, verkefni sem bregðast við brottfalli úr íþróttastarfi og aðgerðir sem stuðla að bættri heilsu og félagslegri þátttöku ungmenna. Styrkirnir eru á bilinu 150 þúsund króna og upp úr og hlutu nokkur verkefni eina milljón króna í styrk.

Heildaryfirlit yfir öll verkefni sem hlutu styrk má nálgast hér. Einnig er hægt að skoða yfirlitið á myndum hér fyrir neðan.

Nánari upplýsingar um Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar má finna á heimasíðu sjóðsins.