Fara í efni

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), í samvinnu við Lottó, stendur fyrir kjöri á Íþróttaeldhuga ársins samhliða kjöri á Íþróttamanni ársins þann 3. janúar næstkomandi. Íþróttaeldhugi ársins er valinn úr röðum sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni, sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarfið í sínu nærumhverfi eða á landinu öllu.

Kallað var eftir tilnefningum úr hreyfingunni og frá landsmönnum og bárust alls 208 tilnefningar um 116 einstaklinga úr 25 íþróttagreinum. Úr röðum þeirra hefur sérstök valnefnd valið þrjá einstaklinga og mun einn þeirra hljóta heiðursviðurkenninguna Íþróttaeldhugi ársins 2025. Tilkynnt verður um úrslitin, eins og áður sagði, í hófi um kjör Íþróttamanns ársins 2025.
Valnefndin var skipuð þeim Þóreyju Eddu Elísdóttur formanni, Degi Sigurðssyni, Einari Ólafssyni, Kristínu Rós Hákonardóttur og Margréti Láru Viðarsdóttur. 

Þeir einstaklingar sem valnefndin valdi úr röðum tilnefninga eru í stafrófsröð:

  • Árni Þór Grétarsson (handknattleikur), hefur starfað fyrir Ungmennafélag Selfoss.
  • Bjarni Malmquist Jónsson (frjálsíþróttir og borðtennis), Ungmennafélaginu Vísi og formaður USÚ.
  • Hugrún Hjálmarsdóttir (knattspyrna, skíði og blak) hefur starfað fyrir Íþróttafélagið Hött, samstarfsvettvanginn FHL og UÍA.

Rökstuðning úr innsendum tilnefningum má finna hér:

Árni Þór Grétarsson hefur verið ómetanlegur burðarás í handboltastarfinu á Selfossi í áratugi. Hann er alltaf til staðar, mætir á alla leiki – heima og að heiman – og tekur að sér öll þau verkefni sem þarf að sinna, hvort sem það er lýsing á leikjum, auglýsingagerð, aðstoð við ferðalög eða skipulagningu. Hann gerir þetta allt með jákvæðu hugarfari og brosi á vör. 

Árni hefur séð um samfélagsmiðla, hlaðvörp, útsendingar á leikjum og verið liðstjóri bæði hjá meistaraflokki og yngri flokkum. Hann ferðast með liðum innanlands og erlendis, tekur þátt í fjáröflunum og er meira og minna í íþróttahúsinu allan daginn. Hann er til fyrirmyndar í samskiptum og hefur haft djúpstæð áhrif á fjölda ungra iðkenda sem líta upp til hans sem fyrirmynd og leiðtoga. 

Árni Þór er dæmi um ósérhlífinn einstakling sem vinnur fyrir félagið af eldmóði og einlægri ástríðu. Hann leitar ekki eftir athygli eða hrósi, heldur vinnur af hreinni elju og hjartahlýju. Með dugnaði sínum, einlægni og góðvild hefur hann haft djúpstæð áhrif á íþróttalífið á Selfossi og verðskuldar sannarlega tilnefningu til Íþróttaeldhuga ársins 2025.

Bjarni Malmquist Jónsson sýndi einstakan drifkraft og seiglu við að endurvekja Ungmennafélagið Vísi í Suðursveit og að virkja samtakamátt fólksins í sveitinni við framkvæmdir á fjölnota íþróttavelli við Hrollaugsstaði. Hann hefur verið leiðandi í að skapa tækifæri fyrir samfélagið til að láta hugmyndir rætast og hefur smitað út frá sér með jákvæðni og lausnamiðaðri hugsun. 

Verkefnið varð ekki aðeins byggingarframkvæmd heldur samfélagslegt afl þar sem nær hver einasti íbúi lagði sitt af mörkum. Íþróttavöllurinn við félagsheimilið Hrollaugsstaði hefur orðið tákn um sjálfstæði, seiglu og trú á framtíðina í einni af fjarlægari sveitum landsins. Áhrif Bjarna munu vara um ókomna tíð og styrkja sveitarfélagið, ungmennafélagið og samheldni í Suðursveit um ókomin ár. 

Bjarni hefur einnig unnið mikið starf hjá Borðtennisdeild Ungmennafélagsins Vísis, komið á laggirnar vikulegum æfingum í borðtennis fyrir allan aldur og árlegum æfingabúðum fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Hann hefur verið drífandi kraftur fyrir fólkið í Suðursveit og er formaður USÚ. 

Með eldmóði og hugrekki hefur Bjarni kveikt neista sem hefur breiðst út um alla Suðursveit. Bjarni er verðugur Íþróttaeldhugi ársins 2025.

Hugrún Hjálmarsdóttir hefur í áratugi verið ómetanlegur burðarás í íþróttastarfi á Austurlandi. Hún hefur í frítíma sínum beitt hæfileikum sínum og þekkingu til að efla íþróttalíf á Austurlandi í mörgum íþróttagreinum og fyrir fólk á öllum aldri. Hún hefur sinnt fjölbreyttu sjálfboðastarfi í knattspyrnu, skíðum og blaki og setið í stjórnum og ráðum íþróttafélaga. Sem formaður FHL meistaraflokks kvenna í knattspyrnu leiddi hún liðið í gegnum tímabil í Bestu deildinni án þess að félagið hefði launaðan starfsmann. Hún hefur einnig staðið að uppbyggingu gönguskíðaiðkunar fyrir almenning og tryggt að börn og ungmenni á svæðinu hafi aðgang að skíðaíþróttum. Með eldmóði, drifkrafti og óeigingjörnu framlagi hefur Hugrún haft djúpstæð áhrif á íþróttalíf í heimabyggð og er því verðugur Íþróttaeldhugi ársins 2025.

Eins og fram kemur í rökstuðningi úr innsendum tilnefningum þá hafa þau öll unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu íþrótta hjá sínum félögum. Mynd af þremenningunum fylgir hér í fréttinni.