Fara í efni

Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hefur tekið ákvörðun um að greiða öllum keppendum á Ólympíuleikum framtíðarinnar styrk að upphæð 10.000 USD eða jafnvirði um 1,3 milljóna íslenskra króna. Ákvörðun IOC gildir frá og með Vetrarólympíuleikunum í Mílanó Cortína í febrúar síðastliðnum og nær til allra keppenda, óháð árangri. Áætlað er að um 14 þúsund íþróttamenn verði gjaldgengir á hverju tímabili. Opnað verður fyrir umsóknir um styrki vegna Mílanó Cortína síðar á yfirstandandi ári og verða þeir styrkir síðan greiddir út á árinu 2027. Nánari upplýsingar um umsóknarferlið liggja ekki fyrir að svo stöddu. 

Styrkirnir koma úr nýjum sjóði á vegum IOC og hafa þeir ekki áhrif á aðrar fjárveitingar sem ólympíunefndir aðildarþjóða IOC og alþjóðasambönd keppnisgreina á leikunum fá nú þegar. Styrkurinn er hugsaður sem viðurkenning á þeirri vegferð og vinnu sem íþróttafólk hefur lagt að baki á leið sinni til þátttöku í Ólympíuleikum. Til að eiga rétt á styrknum mega keppendur ekki hafa gerst sekir um lyfjamisferli eða brotið siðareglur ólympíuhreyfingarinnar. Ef íþróttamaður ákveður að sækja ekki um styrkinn, þá rennur sú upphæð sem ætluð var viðkomandi einstaklingi aftur inn í sjóðinn, til úthlutunar til keppenda næstu leika.

Hver forseti IOC kemur með sínar áherslur inn í hreyfinguna og setur ákveðin málefni á oddinn á því kjörtímabili. Með Kirsty Coventry í embætti forseta IOC á síðasta ári hafa komið ýmsar stefnubreytingar hjá IOC, er lúta margar hverjar að bættu umhverfi íþróttafólks. 

Þessir styrkir eiga svo sannarlega eftir að koma sér vel fyrir íslenska Ólympíufara og eru mikilvægur stuðningur við þátttöku þeirra í leikunum.

Mynd/olympics.com