Fara í efni

Evrópusamband Ólympíunefnda (EOC) stóð fyrir fundum og vinnustofum, EOC Seminar & IOC Olympic Solidarity Forum, í Split í Króatíu dagana 9. og 10. október. Þar komu saman fulltrúar Ólympíunefnda víðs vegar að úr Evrópu. Fyrir hönd ÍSÍ sóttu Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Kristín Birna Ólafsdóttir, afreksstjóri ÍSÍ, fundina.

Sjónum var beint að undirbúningi fyrir Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar (EYOF) 2027 í Brașov og Lignano Sabbiadoro, Evrópuleikana í Istanbúl 2027 og Ólympíuleikana í Los Angeles 2028. Eftir sameiginlegar kynningar á hverju móti tóku Ólympíunefndirnar þátt í fjórum vinnustofum. Þar var fjallað um val íþróttafólks, samstarf Ólympíunefnda, tæknibreytingar og ný tækifæri til að styðja keppnishópa.

Líney Rut Halldórsdóttir sótti einnig fundina sem stjórnarmaður í EOC og formaður EYOF-nefndar sambandsins. Á stjórnarfundi EOC daginn áður kynnti hún stöðuna á vetrarhátíðinni í Brașov og sumarhátíðinni í Lignano Sabbiadoro, en skipulagið er á góðu skriði á báðum stöðum. Þar var einnig staðfest að siglingar bætast við keppnisgreinar Evrópuleikanna.

Fyrir ÍSÍ er þetta mikilvægur vettvangur til að fylgjast með undirbúningi komandi leika og eiga samtal við aðrar Ólympíunefndir í Evrópu.