ÍSÍ hefur um árabil sent kennara í Háskólann á Hólum einu sinni á vetri til að kenna nemendum við hestafræðideild nokkrar kennslustundir. Kennslan er hluti af samstarfi ÍSÍ, Háskólans á Hólum og Landssambands hestamanna (LH) á sviði þjálfaramenntunar.
Í kennslunni er meðal annars farið yfir skipulag íþróttahreyfingarinnar á Íslandi, þjálfaramenntun ÍSÍ, stefnu sambandsins í barna- og unglingaíþróttum ásamt markmiðasetningu í íþróttastarfi. Markmið kennslunnar er að veita nemendum aukna innsýn í faglegt skipulag íþróttastarfs og undirbúning þeirra fyrir störf sem þjálfarar.
Að venju var það Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ, sem annaðist kennsluna að þessu sinni.
Meðfylgjandi er mynd af nemendahópnum við hestafræðideild Háskólans á Hólum þennan veturinn.
