Fara í efni

Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) hefur staðfest tilnefningar Sundsambands Íslands (SSÍ) og Skylmingasambands Íslands (SKY) á þeim keppendum og fylgdarliði sem fara munu fyrir hönd Íslands á Ólympíuleika ungmenna í Dakar 2026. 

Íslandi var úthlutað tveimur keppnissætum í sundi og einu keppnissæti í skylmingum. Þrír ungir íslenskir íþróttamenn munu því keppa fyrir Íslands hönd á leikunum.

Keppendurnir þrír, ásamt fylgdarliði, eru:

Sund

  • Alexander Ari Andrason, keppandi í 50m flugsund, 100m flugsund, og 200m flugsund
  • Sólveig Freyja Hákonardóttir, keppandi í 200m skriðsund, 400m skriðsund, og 50m baksund
  • Hrafnhildur Lúthersdóttir, þjálfari

Skylmingar

  • Ari Vilberg Jónasson, keppandi – Höggsverð/Sabre
  • Gunnar Egill Ágústsson, þjálfari

Aðrir þátttakendur

  • Brynja Guðjónsdóttir, aðalfararstjóri
  • Ólafur Engilbert Árnason, sjúkraþjálfari

 

Um leikana 

Ólympíuleikar ungmenna (Youth Olympic Games, YOG) fara fram í Dakar í Senegal dagana 30. október til 13. nóvember 2026. Þetta er í fyrsta sinn sem íþróttaviðburður á vegum Alþjóða-ólympíunefndarinnar er haldinn í Afríku. 

Leikarnir eru haldnir á fjögurra ára fresti, bæði að sumri og vetri, og eru ætlaðir efnilegasta unga íþróttafólki heims. Þeir fóru fyrst fram í Singapore árið 2010 og hefur Ísland unnið til gullverðlauna í 200 m hlaupi stúlkna árið 2018 og silfurverðlauna í knattspyrnu drengja árið 2014. Til stóð að halda leikana árið 2022 en þeim var frestað um fjögur ár vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

Keppt verður nú í 25 íþróttagreinum og er gert ráð fyrir þátttöku um 2.700 íþróttamanna.

ÍSÍ óskar keppendum og fylgdarliði góðs gengis og farsældar á Ólympíuleikum ungmenna í Dakar.

Nánari upplýsingar um leikana má finna hér:  https://www.olympics.com/en/dakar-2026

 

/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3116.jpeg?v=1787766299
Sólveig Freyja Hákonardóttir
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3115.jpeg?v=1787766301
Alexander Ari Andrason
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3117.jpeg?v=1787766302
Ari Vilberg Jónasson