Skíðasambands Íslands hefur valið keppendur og aðstoðarfólk á Vetrarólympíuleikana í Mílanó Cortína. Leikarnir verða settir þann 6. febrúar næstkomandi og lýkur 22. febrúar næstkomandi.
Samkvæmt gögnum frá Alþjóðaskíðasambandinu (FIS) fékk Ísland úthlutað fjórum kvótasætum á Vetrarólympíuleikana í Mílanó Cortína, þ.e. tvö í alpagreinum (karl og kona) og tvö í skíðagöngu (karl og kona). Alls er því um fjóra keppendur að ræða og hefur verið staðfest við FIS að Ísland muni nýta þann kvóta að fullu.
Framkvæmdastjórn ÍSÍ hefur staðfest val Skíðasambandsins.
Keppendurnir fjórir, ásamt fylgdarliði, eru:
Skíðaganga:
Dagur Benediktsson, keppandi í 20 km skiptigöngu, sprettgöngu, 10 km með frjálsri aðferð og 50 km með hefðbundinni aðferð
Kristrún Guðnadóttir, keppandi í sprettgöngu og 10 km með frjálsri aðferð
Vegard Karlstrøm, þjálfari
Alpagreinar:
Jón Erik Sigurðsson, keppandi í svigi og stórsvigi
Elín Elmarsdóttir Van Pelt, keppandi í svigi og stórsvigi
Kristinn Magnússon, þjálfari – alpagreinar kvenna
Haukur Þór Bjarnason, þjálfari – alpagreinar karla
Marko Spoljaric - þjálfari, alpagreinar karla
Aðrir þátttakendur:
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ
Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ
Líney Rut Halldórsdóttir, aðalfararstjóri, staðsett í Predazzo
Brynja Guðjónsdóttir, fararstjórn Cortina
Kristín Birna Ólafsdóttir, fararstjórn Bormio
Sigurður Hauksson - flokkstjóri, alpagreinar kvenna
Brynja Þorsteinsdóttir - flokkstjóri, alpagreinar karla
Esben Tøllefsen - smurningsmaður, skíðaganga
Snorri Eyþór Einarsson - skíðaprófun og flokkstjórn, skíðaganga
Ólafur Th. Árnason - skíðaprófun og flokksstjórn, skíðaganga
Sigurður Nikulásson - aðstoðarmaður, alpagreinar karla
Heilbrigðisteymi
Helgi Steinar Andrésson, sjúkraþjálfari í Cortina
Erlend Skippervik, sjúkraþjálfari í Predazzo
ÍSÍ hefur samið við heilbrigðisteymi Írlands og Danmerkur um heilbrigðisþjónustu í Bormio og Cortina en sjúkraþjálfari ÍSÍ mun á móti þjónusta keppendur Írlands og Danmerkur í Predazzo.
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir er efst íslenskra kvenna í alpagreinum á stigalista og Ólympíulista Alþjóðaskíðasambandsins (FIS) en hún varð fyrir því óhappi að fótbrotna við æfingar í desember síðastliðnum. Vonir stóðu til að hún næði að keppa á leikunum þrátt fyrir meiðslin og hefur hún verið í stífri endurhæfingu síðustu vikurnar. Nú er hins vegar því miður ljóst, að mati sérfræðinga, að ekki er talið ráðlegt að hún keppi á Ólympíuleikunum. ÍSÍ óskar Hólmfríði Dóru alls góðs í bataferlinu og skjótrar endurkomu. ÍSÍ óskar öllum keppendunum góðs gengis á leikunum. Nánari upplýsingar um leikana er að finna hér
Keppendur á myndum: Kristrún Guðnadóttir, Elín Elmarsdóttir Van Pelt, Jón Erik Sigurðsson og Dagur Benediktsson
Myndir með frétt



