Fara í efni

Á bak við hvert mót, hvern leik og hverja æfingu er fólk sem gefur tíma sinn án þess að ætlast til nokkurs í staðinn. Nú er komið að okkur að þakka. ÍSÍ og Lottó leita að Íþróttaeldhuga ársins 2026 og óska eftir tilnefningum frá almenningi.

Íþróttaeldhugi ársins er viðurkenning fyrir sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni og verður hún veitt samhliða kjöri á Íþróttamanni ársins 2026. Hægt er að senda inn tilnefningar til og með 5. desember.

Leitað er að framúrskarandi sjálfboðaliðum sem hafa í gegnum árin nýtt hæfileika sína, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarf hvar sem er á landinu. Það getur til dæmis verið með því að vinna að framkvæmd móta og leikja, safna fjármunum, bæta aðstöðu, sitja í stjórnum eða fá fleiri til að taka þátt. Launað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar kemur ekki til greina.

Senda inn tilnefningu

„Íþróttastarfið á Íslandi stendur í mikilli þakkarskuld við alla þá einstaklinga sem gefið hafa af tíma sínum til að sinna sjálfboðaliðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna. Með þessari viðurkenningu viljum við lyfta upp starfi sjálfboðaliðans og þakka fyrir hið óeigingjarna starf sem unnið er af fjölda fólks um land allt. Við hvetjum einstaklinga til að senda inn tilnefningar,“ segir Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.

Valnefnd skipuð fyrrverandi afreksíþróttafólki fer yfir tilnefningarnar. Í henni sitja Þórey Edda Elísdóttir, formaður, Einar Ólafsson, Dagur Sigurðsson, Kristín Rós Hákonardóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir. Nefndin velur þrjá einstaklinga úr hópi tilnefndra og einn þeirra hlýtur titilinn Íþróttaeldhugi ársins 2026 og glæsilegan verðlaunagrip frá Lottó.

Þekkir þú sjálfboðaliða sem hefur látið til sín taka? Sendu inn tilnefningu og hjálpaðu okkur að gera þessi störf sýnileg. Við hvetjum íþróttafélög og deildir til að kynna viðurkenninguna og deila henni á sínum miðlum. Án sjálfboðaliðanna væri ekkert íþróttastarf.

Tilnefna íþróttaeldhuga