Íþróttafélagið Nes fékk endurnýjun á viðurkenningu félagsins sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á ársþingi Íþróttabandalags Reykjanessbæjar sem haldið var fimmtudaginn 7. maí síðastliðinn. Félagið, sem er íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum, fékk fyrst þessa viðurkenningu árið 2021.
Það var Ragnheiður Ríkharðsdóttir úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem afhenti Jóhanni Jóhannssyni, formanni félagsins, viðurkenninguna. Ragnheiður var ásamt Hafsteini Pálssyni, einnig er úr framkvæmdastjórn ÍSÍ, voru fulltrúar ÍSÍ á ársþinginu.
Mikilvægt lærdómsferli fyrir félagið
Vinna við endurnýjun viðurkenningarinnar reyndist félaginu bæði yfirgripsmikil og lærdómsrík og leiddi til umbóta á ýmsum sviðum í starfseminni.
„Við lærðum mikið á að vinna í uppfærslu handbókarinnar og gátum bætt verklag félagsins á ýmsum sviðum. Það er einnig gott að hafa tæki og tól til að bregðast við þeim málum sem gætu komið upp við æfingar og keppni hjá félaginu,“ segir Jóhann Jóhannsson, formaður Íþróttafélagsins Ness.
Viðurkenningin sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er mikilvæg staðfesting á markvissri og ábyrgri vinnu félagsins og þeirri áherslu sem lögð er á faglegt skipulag, skýrt verklag og öruggt íþróttastarf.
