Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er hafin en hún stendur yfir dagana 23.-30. september. Frá árinu 2015 hefur verkefnið hvatt milljónir Evrópubúa til að hreyfa sig meira og tileinka sér heilbrigðari lífsstíl.
Markmið vikunnar er að hvetja fólk á öllum aldri og úr öllum samfélagshópum til hreyfingar hvort sem það er í gegnum íþróttir, leik eða skipulagða viðburði. Átakið sem sett var á laggirnar af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins nær nú til 42 landa og ár hvert taka milljónir einstaklinga þátt í þúsundum viðburða víðs vegar um Evrópu.
Hér má sjá ávarp Glenn Micallef, framkvæmdastjóra íþróttamála hjá ESB, í tilefni Íþróttaviku Evrópu 2026.
Um allt land verður boðið upp á fjölbreytta viðburði þar sem allir geta tekið þátt á sínum forsendum. Yfirlit yfir alla viðburði má finna hér.
Einnig er hægt er að lesa nánar um vikuna hér.
Vertu með - #BeActive!
