Fara í efni

Verkefnið Allir með hefur hleypt af stokkunum nýrri vitundarvakningu undir yfirskriftinni Íþróttir eru fyrir öll börn. Skilaboðin eru skýr: öll börn eiga að hafa tækifæri til að stunda íþróttir í sínu nærumhverfi og vera hluti af liði. Í sjónvarpsauglýsingu herferðarinnar fer fjöldi barna, foreldra og þjálfara á kostum.

Í dag stundar aðeins eitt af hverjum tíu börnum með fötlun íþróttir. Hlutfallið hefur hækkað frá árinu 2023 þegar það var 4% en er enn allt of lágt. Nú bjóða 34 íþróttafélög um allt land upp á starf fyrir börn með fötlun og rúmlega 72 milljónum króna hefur verið úthlutað úr hvatasjóði Allir með til félaga sem hafa sett af stað slík verkefni.

Markmið vitundarvakningarinnar er að halda áfram á sömu braut og fjölga enn frekar tækifærum barna með fötlun til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi. Um leið eru íþróttafélög og þjálfarar hvött til að kynna sér þá fræðslu og þann stuðning sem Allir með býður upp á og foreldrar geta fengið aðstoð við að finna starf sem hentar barninu þeirra.

Auk auglýsingarinnar hafa verið gerð viðtalsmyndbönd þar sem börn, foreldrar, þjálfarar og forsvarsfólk íþróttahreyfingarinnar segja frá reynslu sinni af íþróttastarfi. Efnið verður áberandi í öllum helstu miðlum næstu vikur.

 

Frumsýning í Laugardalshöll

Herferðin var frumsýnd í Laugardalshöll fimmtudaginn 22. október þar sem nokkur ávörp voru flutt. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, sagði verkefnið gott dæmi um hvað hægt er að gera þegar ráðuneyti, íþróttahreyfingin, sveitarfélög og íþróttafélög vinna saman að því að öll börn geti verið hluti af liði. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, tók í sama streng og benti á að raunveruleg tækifæri krefjist aðgengilegrar aðstöðu, stuðnings við þjálfara og upplýsinga til fjölskyldna.

Valdimar Smári Gunnarsson, verkefnastjóri Allir með, sagði frá verkefninu og herferðinni en íþróttir barna með fötlun hafa lengi verið honum hjartans mál. Sólný Ingibjörg Pálsdóttir, móðir iðkanda, flutti einnig ávarp. Hún sagði mannvirki, fjármagn og átak á borð við þetta vissulega skipta máli. Fyrst og fremst þurfi þó hvert og eitt okkar að líta í eigin barm og spyrja hvað við getum lagt af mörkum. Hún hvatti viðstadda til að breyta samfélaginu þannig að það þyki sjálfsagt og eðlilegt að öll taki þátt í íþróttum.

Allir með leikarnir á laugardaginn!

/cdn/media/Frettamyndir/allirmed-2026-forsida-1920x1080.jpg?v=1792760258

Laugardaginn 31. október fara Allir með leikarnir fram í Laugardalshöll kl. 10–14. Þar gefst kjörið tækifæri til að sjá með eigin augum hvað þetta snýst um og taka þátt í íþróttum fyrir alla.  Nánari upplýsingar og skráning er hér: https://allirmed.com/allir-med-leikarnir/

Um verkefnið Allir með
Allir með er samstarfsverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og Íþróttasambands fatlaðra (ÍF). Því var komið á fót árið 2023 með stuðningi þriggja ráðuneyta. Nánari upplýsingar á allirmed.is.

Hér að neðan má sjá myndir frá frumsýningunni. Ljósmyndari: Jón Gautur

Allir með 22/10/26

Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26
Allir með 22/10/26