Fara í efni

Um 60 fulltrúar norrænna íþrótta- og Ólympíusamtaka, samtaka um íþróttir fatlaðra og íþróttamannanefnda komu saman á Hótel Reykjavík Öskju dagana 10.–11. september á árlegum fundi sínum. Þátttakendur komu frá Noregi, Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð, Álandseyjum, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi.

Fyrri daginn funduðu allir hóparnir saman um sameiginleg hagsmunamál en seinni daginn var fundað í aðskildum hópum.

Kveðjur frá IOC og ANOC

Við fundarsetningu var spilað rafrænt ávarp frá Kirsty Coventry, forseta Alþjóðaólympíunefndarinnar (IOC), og Gunillu Lindberg, framkvæmdastjóra Heimssambands Ólympíunefnda (ANOC).

Fleiri háttsettir gestir tóku þátt. Spyros Capralos, forseti Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) og meðlimur í IOC, tók þátt í hluta dagskrárinnar í gegnum fjarfundabúnað. Andrew Parsons, forseti Alþjóðaólympíunefndar fatlaðra (IPC) og meðlimur í IOC, tók þátt í dagskrá sem Íþróttasamband fatlaðra skipulagði. Það var vel við hæfi því norrænt samstarf um íþróttir fatlaðra fagnar 50 ára afmæli í ár. Samstarfið hófst einmitt á Hótel Loftleiðum árið 1976.

Karen Dolpin frá IOC stýrði fundum íþróttamannanefndanna og leiddi auk þess hópastarf um afreksíþróttir á fimmtudeginum.

Lýðheilsa, stjórnarhættir og alþjóðlegt samstarf

Helstu umræðuefni fundarins voru málefni íþróttafólks, lýðheilsa, góðir stjórnarhættir, norrænt og alþjóðlegt samstarf og íþróttir og pólitík. Einnig var farið yfir stöðuna í ýmsum málum sem varða þátttöku í alþjóðlegum verkefnum. Systursamtök ÍSÍ í Danmörku, Svíþjóð og Noregi kynntu áhugaverð verkefni sem þau vinna að.

„Við eigum sterkt bakland“

Fyrirlesarar komu úr hópi þátttakenda. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, flutti erindi um íþróttir og lýðheilsu.

„Það má segja að norrænt velferðarsamfélag rími afar vel við norrænt íþróttastarf þar sem áhersla er lögð á jöfn tækifæri, þátttöku allra og þann samfélagslega ávinning sem hlýst af því að fólk hreyfi sig, taki þátt og tilheyri,“ sagði Willum Þór í lok fundarins.

Hann lagði áherslu á að árlegir fundir skiptu miklu máli, ekki síst fyrir smærri þjóðirnar, til að ræða það sem efst er á baugi í alþjóðlegu samhengi og greina tækifæri og áskoranir.

„Það ríkir mikið traust og vinátta milli þessara þjóða og viljinn til að deila góðum hugmyndum og reynslu er mikill. Við fámennari þjóðirnar finnum að við eigum sterkt bakland í samtökum stærri þjóðanna. Í gegnum tíðina hefur það einnig sýnt sig að Ísland hefur ýmislegt til málanna að leggja í þessu samstarfi og hefur jafnvel verið í fararbroddi í ýmsum þáttum íþróttastarfsins.“

Næsti fundur verður haldinn í Svíþjóð að ári.

/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3296.jpg?v=1790076765

 

/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3709.JPG?v=1790076797
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3692.JPG?v=1790076793
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3675.JPG?v=1790076786
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3328.jpg?v=1790076776
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3327.jpg?v=1790076773
/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3325.jpg?v=1790076770

 

/cdn/media/Frettamyndir/IMG_3290.jpg?v=1790076763%2C0.3437%2C0.4288