Fara í efni

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, var gestur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni þar sem hann ræddi kostnað sem fylgt getur þátttöku ungmenna í landsliðsstarfi. Umræðan hefur verið áberandi undanfarið og snýst meðal annars um hvernig tryggja megi jöfn tækifæri til þátttöku í landsliðsverkefnum.

Í viðtalinu sagði Willum að ÍSÍ legði ríka áherslu á að vinna að því að jafna aðgengi að landsliðsstarfi og draga úr áhrifum fjárhags og búsetu á möguleika ungmenna til þátttöku. Hann benti á að á síðustu árum hefðu verið stigin mikilvæg skref í uppbyggingu afreksíþrótta hér á landi, meðal annars með stofnun Afreksmiðstöðvar Íslands og innleiðingu starfslauna fyrir afreksíþróttafólk.

Þrátt fyrir þann árangur sem náðst hefur sagði Willum að efla þyrfti umgjörð afreks- og landsliðsstarfs enn frekar. Hann benti á að þörfin væri enn meiri en það fjármagn sem nú stendur til boða og kvaðst vonast til þess að frekari framgangur næðist í komandi fjárlagavinnu. Að hans mati þurfa stjórnvöld að stíga hraðar og af meiri þunga inn í málaflokkinn svo kostnaður standi ekki í vegi fyrir þeim ungmennum sem fá tækifæri til að keppa fyrir Íslands hönd.

Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér