Skipuleggjendur Ólympíuleikanna og Paralympics í Brisbane 2032 hafa afhjúpað merki leikanna. Í báðum merkjunum er kakadúinn í aðalhlutverki, fjörugur og forvitinn fugl sem á heima í Queensland og víðar í Ástralíu.
Bleikur kakadúi stendur fyrir Ólympíuleikana og hvítur kakadúi með gulan topp fyrir Paralympics.
Útlínur Queensland-fylkis eru faldar í toppi fuglsins og Ólympíueldurinn og eldur Paralympics tákna samstöðu, von og innblástur. Fjöðrunum er raðað þremur og tveimur saman sem vísar til ársins 2032.
Kakadúinn hefur einnig mikla þýðingu í menningu frumbyggja Ástralíu. Hann er tengdur landinu og gegnir hlutverki sendiboða sem tengir fólk við staði, sögur og athafnir.
„Merki Ólympíuleika og Paralympics eru tækifæri til að kynna sérstöðu hverra leika og bjóða heiminum að kynnast, heimsækja, fjárfesta og taka þátt í viðburði sem á sér enga hliðstæðu,“ segir Andrew Liveris, forseti Brisbane 2032.
Afhjúpað í áföngum
Merkin voru afhjúpuð í fimm áföngum víðs vegar um Queensland. Tólf þekktir íþróttamenn tóku þátt, meðal annars keppendur á Ólympíuleikum og Paralympics. Afhjúpanirnar fóru fram við Kóralrifið mikla, á Castle Hill í Townsville, í Rockhampton, á Wildhorse Mountain og á Currumbin-ströndinni. Á hverjum stað bættist við nýr hluti merkjanna. Að lokum voru tvö risastór merki afhjúpuð á South Bank í Brisbane.
Lukkudýr leikanna verða kynnt þegar nær dregur.
Ólympíuleikarnir í Brisbane fara fram 23. júlí til 8. ágúst 2032 og Paralympics 24. ágúst til 5. september.
Nánar má lesa um merkin á vef Alþjóðaólympíunefndarinnar.
Í myndbandinu hér að neðan er farið yfir hugmyndirnar á bak við merkin.
