Aðalfundur og fundur tækninefndar Smáþjóðaleika Evrópu fór fram um helgina í Mónakó, sem verður gestgjafi leikanna 2027.
Á aðalfundinum voru gerðar breytingar á keppnisgreinum næsta árs en körfuknattleikur 3x3, sem fyrirhugað var að keppa í, mun ekki fara fram og var samþykkt að bæta við keppni í golfi. Aðeins hefur verið einu sinni áður keppt í golfi á Smáþjóðaleikunum og var það árið 2015 þegar leikarnir fóru fram á Íslandi. Á næsta ári verður því keppt í frjálsíþróttum, boules, áhaldafimleikum, júdó, sundi, rugby-7, tennis, borðtennis, skotíþróttum (loftbyssa og loftriffill), siglingum, blaki, strandblaki, sundknattleik og golfi.
Breyting var gerð á dagsetningu leikanna og liggur nú fyrir að setningarhátíð næstu leika verður mánudaginn 17. maí og þeim lýkur laugardaginn 22. maí. Mannvirki í Mónakó eru hin glæsilegustu og fjölmargir alþjóðlegir íþróttaviðburðir fara þar fram á hverju ári. Hæst ber að nefna keppni í akstursíþróttum sem fer fram í maí og byrjun júní og er það vegna breytinga á dagsetningum þeirra viðburða að færa þurfti leikana aftur um tvær vikur.
Á aðalfundinum voru fluttar skýrslur frá leikunum 2025 í Andorra og sagt frá undirbúningi fyrir næstu leika.
Mónakó hefur tvívegis áður verið gestgjafi Smáþjóðaleikanna, árið 1987 og 2007. Smáþjóðaleikarnir 2029 munu fara fram í Lúxemborg og árið 2031 verða þeir á Kýpur.
Aðalfundinn sátu Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ og Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ og Olga Bjarnadóttir, 2. varaforseti ÍSÍ, sem situr í tækninefnd leikanna sótti fund tækninefndar.
