Fara í efni

Háskólinn í Reykjavík, í samstarfi ÍSÍ og UMFÍ, býður til málstofu fimmtudaginn 20. ágúst þar sem ný fyrirlestraröð, Kraftur kvenna (Fuelling Females), verður formlega kynnt.

Markmið verkefnisins er að efla konur í hreyfingu og íþróttum með miðlun gagnreyndrar og hagnýtrar þekkingar um næringu, heilsu og lífeðlisfræði kvenna. Verkefnið fellur vel að áherslum ÍSÍ um að styðja við heilsu, vellíðan og þátttöku kvenna í íþróttum.

Á málstofunni mun Christofer Curtis, íþróttanæringarfræðingur og dósent við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, kynna verkefnið og nýja vefsíðu þess. Þá flytur hann erindi um næringu íþróttakvenna og hvernig rétt næring getur stutt við heilsu, vellíðan og frammistöðu.

Einnig fara fram pallborðsumræður undir stjórn Silju Úlfarsdóttur þar sem reynsla úr afreksíþróttum, næringarfræði, þjálfun og almennri heilsurækt verður í forgrunni. Í pallborðinu sitja Sara Sigmundsdóttir, Eygló Fanndal, Ágústa Edda Björnsdóttir, Agnes Þóra Árnadóttir og Erla Guðmundsdóttir.

Málstofan fer fram í stofu V101 í Háskólanum í Reykjavík frá kl. 16:00 til 17:30. Að henni lokinni verður boðið upp á léttar veitingar og gestum gefst tækifæri til að hittast og spjalla.

Verkefnið nýtur styrks úr Íþróttasjóði. Skráning er nauðsynleg og fer fram á: https://forms.cloud.microsoft/e/FKNMZJWkPG