Skipuleggjendur European Sport for All Games 2026 leita eftir sjálfboðaliðum til starfa á leikunum sem fram fara í Limerick á Írlandi dagana 6.–11. ágúst 2026.
European Sport for All Games eru íþróttaleikar fyrir alla þar sem keppt er í hefðbundnum íþróttum. Auk þess er lögð áhersla á menningu og samfélag víðs vegar að úr Evrópu. Leikarnir eru haldnir undir merkjum TAFISA (The Association For International Sport for All), alþjóðasamtaka sem vinna að því að efla hreyfingu og heilsueflingu fyrir alla á heimsvísu.
Upplýsingar fyrir sjálfboðaliða
Viðburður: European Sport for All Games 2026
Dagsetningar: 6.–11. ágúst 2026
Staðsetning: Limerick, Írland
Skráning: https://limericksportforall.ie/volunteer/
Umsóknarfrestur: Sunnudagurinn 19. júlí 2026
Sjálfboðaliðastörfin eru ólaunuð og fylgir þeim ekki fjárhagslegur stuðningur. Sjálfboðaliðar bera sjálfir ábyrgð á að skipuleggja og greiða fyrir ferðalag og gistingu. Þeim verður hins vegar útvegað gjafakort sem gildir alla daga viðburðarins og stendur straum af kostnaði við hádegismat.
Þegar umsóknarfresti lýkur mun skipulagsnefndin hafa samband við umsækjendur til að staðfesta hlutverk og verkefni. Bent er á að mest þörf er á aðstoð laugardag og sunnudag, sem eru annamestu dagar viðburðarins.
Við hvetjum áhugasama til að nýta þetta tækifæri til að taka þátt í alþjóðlegum viðburði og leggja sitt af mörkum til að gera European Sport for All Games 2026 að eftirminnilegum leikum.

