Fara í efni

Hestamannafélagið Léttir á Akureyri fékk viðurkenningu sína sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ endurnýjaða á árshátíð félagsins laugardaginn 14. nóvember síðastliðinn.

Viðar Sigurjónsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði ÍSÍ, afhenti nafna sínum, Viðari Bragasyni formanni Léttis, viðurkenninguna í upphafi árshátíðarinnar sem fór fram í félagsheimili Léttis.

„Fyrir okkur snýst það að vera Fyrirmyndarfélag ÍSÍ fyrst og fremst um að hafa starfið okkar faglegt, vel skipulagt og í stöðugri þróun. Viðurkenningin veitir okkur ákveðið aðhald og hjálpar okkur að tryggja að umgjörðin utan um félagsstarfið sé eins góð og kostur er fyrir félagsmenn okkar,“ sagði Viðar Bragason af þessu tilefni.

ÍSÍ óskar Létti til hamingju með endurnýjunina.

Á myndinni eru Viðar Sigurjónsson og Viðar Bragason, formaður Léttis

/cdn/media/Fyrirmyndarfelag-ISI.jpg?v=1772107795%2C0.5%2C0.4101