Fara í efni

Golfsamband Íslands (GSÍ) og KPMG héldu málstofu í Borgartúni miðvikudaginn 23. september þar sem fjallað var um virði golfsins fyrir heilsu, líðan og samfélag. Málstofan var vel sótt og þar voru kynntar niðurstöður nýrrar rannsóknar sem metur samfélagslegt virði golfíþróttarinnar með aðferðafræði samfélagslegrar arðsemi fjárfestinga (Social Return on Investment, SROI).

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, flutti opnunarávarp þar sem hann fagnaði framtakinu, enda hefði skort haldbær gögn sem sýndu fram á hið gríðarlega samfélagslega virði íþróttastarfs. Slík gögn styrktu stöðu íþróttahreyfingarinnar í samtali við stjórnvöld og nýttust jafnframt vel í þeirri heildstæðu stefnumótun sem hreyfingin vinnur nú að. Hann minnti á að íþróttastarf væri ein helsta forvörn samfélagsins í lýðheilsumálum og að golfið hefði þar sérstöðu, enda næði það til fólks á öllum aldri, jafnt barna og unglinga sem eldra fólks. Þá undirstrikaði hann að starf golfklúbba um land allt byggði ekki síst á ómetanlegu framlagi sjálfboðaliða.

Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, ræddi golfið sem vettvang lýðheilsu og virkrar öldrunar. Kylfingar á Íslandi eru um 33.600 árið 2026, sem er rúmlega 65% fjölgun félaga frá árinu 2019, og um 10% landsmanna stunda golf reglulega. Hulda lagði áherslu á að gögn sem þessi gætu stutt við ákvarðanir opinberra aðila, svo sem ríkis og sveitarfélaga, um fjárfestingu í golfvöllum og grænum svæðum.

Niðurstöður rannsóknarinnar kynntu Helga Garðarsdóttir og Emil Þór Ragnarsson frá KPMG. Samkvæmt þeim nemur samfélagslegt virði golfsins rúmum 31 milljarði króna á ári, sem er um tvöfalt það sem lagt er til íþróttarinnar. Þá er golfiðkun talin spara ríkinu um fjóra milljarða króna í heilbrigðisútgjöldum. Virðið hvílir á þremur meginstoðum: vellíðan og lífsgæðum, hagrænum áhrifum og samfélagslegum ávinningi. Einnig kom fram að golf er meðal fárra íþrótta þar sem þátttaka helst eða eykst með aldri og að kylfingar hreyfa sig að jafnaði umfram ráðlagða hreyfingu.

Lokaerindið flutti Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir lýðheilsufræðingur, sem fjallaði um samfélagslegar áskoranir og virði golfhreyfingarinnar. Að því loknu sköpuðust líflegar umræður meðal gesta um niðurstöðurnar og hvernig nýta megi golfið enn frekar í þágu samfélagsins.

/cdn/media/Frettamyndir/Willum-a-GSI.jpg?v=1790608401
/cdn/media/Frettamyndir/Hulda-Bjarnadottir.jpg?v=1790608338