Fara í efni

Kraftur kvenna (e. Fuelling Females) er fræðsluverkefni sem hefur það að markmiði að efla konur í hreyfingu og íþróttum með því að miðla gagnreyndri og hagnýtri þekkingu um heilsu, næringu og lífeðlisfræði. Fyrsta málstofa verkefnisins var haldin 20. ágúst í Háskólanum í Reykjavík í samstarfi við ÍSÍ og UMFÍ. Þar var fjallað um nýjustu rannsóknir á sviði næringar í íþróttum og hvernig aukin þekking getur stutt við heilsu og árangur.

Christofer Curtis, íþróttanæringarfræðingur og dósent við Háskólann í Reykjavík, kynnti verkefnið og fór yfir þróun rannsókna sem í auknum mæli taka mið af lífeðlisfræði kvenna og reynslu þeirra.

Curtis lagði sérstaka áherslu á að gera vísindin aðgengileg og hagnýt fyrir almenning. Hann sýndi hvernig einfalda má flókin viðfangsefni, þar á meðal útreikninga á orku- og næringarþörf. Einnig kynnti hann vefsíðu verkefnisins þar sem nálgast má áreiðanlegar upplýsingar, leiðbeiningar og annað efni sem styður við upplýstar ákvarðanir um næringu og heilsu.

Að erindinu loknu fóru fram pallborðsumræður undir stjórn Silju Úlfarsdóttur þar sem fulltrúar úr afreksíþróttum, næringarfræði og heilsurækt deildu reynslu sinni og sjónarmiðum um næringu og heilsu kvenna á hreyfingu. Í pallborðinu sátu Sara Sigmundsdóttir, Eygló Fanndal Óskarsdóttir, Ágústa Edda Björnsdóttir, Agnes Þóra Árnadóttir og Erla Guðmundsdóttir. Umræðurnar vörpuðu ljósi á mikilvægi þess að auka þekkingu á sérþörfum kvenna þegar kemur að næringu, heilsu og íþróttaiðkun.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðu þess hér

Málstofan var einnig send út í beinu streymi og hægt er að horfa á upptöku af henni hér

/cdn/media/Frettamyndir/0W5A3741.jpg?v=1787338282
Christofer Curtis, íþróttanæringarfræðingur og dósent við Háskólann í Reykjavík
/cdn/media/Frettamyndir/1E1A1431.jpg?v=1787338832
Silja Úlfarsdóttir, Eygló Fanndal Óskarsdóttir, Erla Guðmundsdóttir, Ágústa Edda Björnsdóttir, Agnes Þóra Árnadóttir og Sara Sigmundsdóttir
/cdn/media/Frettamyndir/0W5A3798.jpg?v=1787339677
Málstofan var mjög vel sótt