Næsti áfangi í stefnumótunarvinnu íslenskrar íþróttahreyfingar er að hefjast. Þriðjudaginn 1. september kl. 16:00 til 19:00 verður haldinn netfundur með fulltrúum íþróttahéraða og sérsambanda. Fulltrúar íþróttafélaga eru einnig hvattir til þátttöku.
Fundurinn er framhald af stefnumótunarfundum sem haldnir voru víða um land á vordögum í nánu samstarfi við íþróttahreyfinguna. Á þeim fundum var unnið með þrjú meginsvið stefnumótunarinnar: grasrótarstarf, afreksstarf og samfélagslegt hlutverk íþróttahreyfingarinnar með áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Þar fóru fram góðar umræður um leiðina fram undan og áherslur til framtíðar.
Mikilvægt er að sem flestir taki þátt í næsta fasa vinnunnar og leggi sitt af mörkum til mótunar framtíðarsýnar íþróttahreyfingarinnar. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá Expectus, mun stýra fundinum líkt og áður.
Skráning
Mikilvægt er að skrá þátttöku á fundinum.
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn
Framhaldið
Tillögur sem mótast í stefnumótunarvinnunni verða til umræðu á sambandsráðsfundi UMFÍ í október og á formannafundi ÍSÍ í nóvember.
Stefnumótunarvinnan er unnin á vegum stýrihóps sem starfar í umboði stjórna ÍSÍ og UMFÍ. Markmiðið er að niðurstöður hennar verði formlega kynntar á Íþróttaþingi árið 2027.
