Fara í efni

Nikolay Mateev, formaður Skylmingasambands Íslands, var tekinn inn í Heiðurshöll Alþjóðaskylmingasambandsins (FIE Hall of Fame) á þingi sambandsins í Búdapest. Þingið fór fram 21.–22. nóvember og Nikolay tók við viðurkenningunni á hátíðarkvöldverði þess. Hún er ein æðsta viðurkenning sem FIE veitir.

Nikolay situr í framkvæmdastjórn bæði FIE og Evrópska skylmingasambandsins (EFC). Þetta er mikill persónulegur heiður fyrir hann og jafnframt mikilvægur áfangi fyrir íslenskar skylmingar.

ÍSÍ óskar Nikolay innilega til hamingju með þennan mikla heiður.

Á meðfylgjandi mynd eru Nikolay Mateev og Gulnara Saidova, framkvæmdastjóri FIE, þegar viðurkenningin var afhent.