Fulltrúar frá Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð komu nýverið saman á norrænum fundi um fyrirtækjaíþróttir þar sem sjónum var beint að tækifærum og áskorunum við að efla hreyfingu og heilsu starfsfólks á vinnustöðum.
Fulltrúar Íslands á fundinum voru Linda Laufdal, sérfræðingur á Fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ, og Margrét Regína Grétarsdóttir, verkefnastjóri Bjarts lífsstíls, heilsueflingar 60+.
Á fundinum kynntu þátttökulöndin stöðu og helstu verkefni á sínu sviði og deildu reynslu af því hvernig best megi efla hreyfingu almennings bæði í samfélaginu og á vinnustöðum.
Einn af meginliðum fundarins var erindi Mortens Hulvej Rod, framkvæmdastjóra dönsku lýðheilsustofnunarinnar (National Institute of Public Health). Í erindinu fjallaði hann um skipulagðar forvarnir og hvernig nýta megi rannsóknir á sviði lýðheilsu til að skapa heilbrigðara umhverfi og betri aðstæður fyrir almenning. Jafnframt var rætt um mikilvægi samstarfs íþrótta- og lýðheilsusamtaka, stjórnvalda og annarra hagsmunaaðila til að efla forvarnir og lýðheilsustarf á Norðurlöndum.
Á öðrum degi fundarins var unnið í smærri vinnustofum þar sem þátttakendur ræddu meðal annars hvernig gera mætti hreyfingu á vinnustöðum meira aðlaðandi fyrir atvinnurekendur, hvernig ná mætti betur til vanvirka fullorðinna og nýrra markhópa auk þess sem fjallað var um sýnileika fyrirtækjaíþrótta og mikilvægi markvissrar kynningar.
Þá voru ræddar leiðir til að efla norrænt samstarf og auka vitund um gildi hreyfingar í daglegu lífi og starfi.
Fundurinn veitti þátttakendum tækifæri til að skiptast á reynslu og góðum verkefnum, styrkja tengsl milli Norðurlandanna og móta sameiginlega sýn á hvernig efla megi almenningsíþróttir og hreyfingu á komandi árum.
Þátttakendur fundarins voru sammála um mikilvægi þess að hittast reglulega til að miðla reynslu og styrkja tengsl. Slíkt samráð eykur möguleika á samstarfi og þróun verkefna á sviði almenningsíþrótta og lýðheilsu.