Fara í efni

Fulltrúar ÍSÍ sóttu árlegan norrænan fund um almennings- og fyrirtækjaíþróttir sem haldinn var í Kaupmannahöfn dagana 10.–13. september. Dansk Firmaidræt var gestgjafi að þessu sinni og yfirskrift fundarins var „Gathering Strength through Company Sport“.

Alls tóku 21 þátttakandi frá fimm löndum þátt í fundinum. Fyrir hönd ÍSÍ mættu Linda Laufdal, sérfræðingur á Fræðslu- og almenningsíþróttasviði og Margrét Regína Grétarsdóttir, verkefnastjóri Bjarts Lífstíls.

„Það er nauðsynlegt að fylgjast með nýjungum og því sem nágrannaþjóðir okkar eru að gera. Með því að hittast reglulega lærum við hvert af öðru og styrkjum samstarfið,“ segir Linda.

Ísland reið á vaðið

Ísland var fyrst í röðinni þegar löndin kynntu verkefni sín. Linda sagði frá starfi Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs og nýjungum sem eru í farvatninu sem vöktu mikinn áhuga. Margrét fór yfir stöðu Bjarts lífsstíls, heilsueflingar fyrir 60 ára og eldri, sem var fyrst kynnt á fundinum í Noregi árið 2022.

Innblástur frá frændþjóðunum

Hin löndin kynntu einnig sín helstu verkefni. Þar má nefna almenningslandslið Svía sem telur nú yfir 33.500 þátttakendur og norsku hjólaherferðina Sykle til jobben, systurverkefni Hjólað í vinnuna. Danir kynntu rafræna aðild að vinnustaðahreyfingu.

Morten Hulvej Rod, forstjóri dönsku lýðheilsustofnunarinnar, hélt einnig erindi. Þar lagði hann áherslu á að breyta þurfi umhverfi og samfélagsgerð til að bæta lýðheilsu frekar en að horfa eingöngu á hegðun einstaklinga.

Á laugardeginum var unnið í vinnustofum meðal annars um hvernig ná megi til óvirkra fullorðinna og auka sýnileika vinnustaðaíþrótta á Norðurlöndunum.

Næsti fundur á Íslandi

Ísland verður gestgjafi næsta fundar sem haldinn verður í september 2027.

/cdn/media/Frettamyndir/fyrirtaekjafundur.jpg?v=1792071937