Fara í efni

Hálfrar aldar afmæli norræns samstarfs í íþróttum fatlaðra var fagnað með formlegum hætti á Hótel Reykjavík Öskju um síðustu helgi í tengslum við árlegan fund norrænna íþrótta- og ólympíusamtaka, samtaka íþrótta fyrir fatlaðra og norrænna íþróttamannanefnda. Sérstaklega vel við hæfi var að afmælishátíðin skyldi fara fram á Hótel Reykjavík Öskju, áður Hótel Loftleiðum, þar sem norrænt samstarf í íþróttum fatlaðra hófst fyrir 50 árum síðan.

Andrew Parsons, forseti International Paralympic Committee (IPC), var sérstakur gestur á afmælishátíðinni en hann er einnig meðlimur í Alþjóðaólympíunefndinni (IOC).

Andrew var heiðraður á viðburðinum en honum var veitt heiðursmerki norræna samstarfsins í íþróttum fatlaðra fyrir ötult starf í þágu hreyfingarinnar á heimsvísu. Þátttakendur í viðburðinum komu frá Danmörku, Færeyjum, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð ásamt gestgjafaþjóðinni Íslandi.

Í tengslum við afmælisviðburðinn heimsótti Andrew einnig Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík sem er elsta íþróttafélag fatlaðra á Íslandi og fagnaði sjálft 50 ára afmæli nýlega. Hann hitti þar bæði íþróttafólk og þjálfara. Einnig átti hann fund með Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, á meðan á heimsókn hans stóð.

Haft var eftir Andrew á heimasíðu IPC að norræna módelið þar sem þjóðirnar sameina krafta sína, allt frá grasrótarstarfi til samstarfs um stuðningsteymi á Ólympíumótum fatlaðra, sé einstakt og ætti að nýtast sem fyrirmynd fyrir aðra heimshluta.

 

Á myndinni eru frá vinstri:  Stig „Stickan“ Carlsson frá Svíþjóð, Andrew Parsons, forseti IPC, Riikka Juntunen frá Finnlandi, Nils Christiansen frá Danmörku og Ólafur Magnússon frá ÍF.